Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[15:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að hæstv. ráðherra hefur sett af stað víðtæka heildarendurskoðun á sjávarútvegskerfinu undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Þegar við í Samfylkingunni köllum eftir hærri veiðigjöldum, sanngjarnari veiðigjöldum, og tölum fyrir því réttlætismáli að almenningur fái aukna hlutdeild í auðlindarentunni sem verður til í sjávarútvegi í krafti aflamarkskerfisins, er iðulega vísað til þess að þessi viðamikla samráðsvinna standi yfir og það megi ekkert vera að fikta of mikið í þessum kerfum meðan svo er. En hvers vegna gilda einhver önnur lögmál þegar kemur að strandveiðikerfinu? Hér er verið að leggja til grundvallarbreytingar á þessu kerfi í raun fram hjá því samráðsferli sem ég vísaði til og þetta eru breytingar sem eru gerðar í óþökk þeirra sem hafa stundað strandveiðar. Hvernig stendur á þessu?