stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að spurning hans er nokkuð út fyrir efni frumvarpsins. Ég vil taka fram að það verður ekki mitt verkefni, undir þessum dagskrárlið, að greina frá innihaldi fjármálaáætlunar, það mun koma fram í næstu viku í samhengi við heildarmyndina, hvort sem er tekjuöflun eða þau útgjöld sem fyrirhuguð eru. Ég vil vekja athygli hv. þingmanns á því að það eru fleiri breytingar en ég hef þegar nefnt sem eru í farvatninu eins og til að mynda breytingar varðandi heimild til þess að færa á milli tegunda, sem er líka mál sem má að mínu mati illa bíða vegna þess að þar er um að ræða greinilega ofveiði á tilteknum stofnum sem er ekki verjandi til langs tíma þegar um er að ræða það orðspor sem við viljum passa upp á, þ.e. sjálfbærar veiðar.