Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[15:39]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru ýmsar leiðir sem hafa verið ræddar og hafa komið upp í hugann og ekki síst nákvæmlega það með hvaða hætti við erum að ráðstafa því sem oft er kallað félagslegi hluti kerfisins, eða þessum 5,3%. Höfum við tækifæri til þess, og við yrðum þá eftir atvikum að gera það með lagasetningu eða með þingsályktun, að færa á milli einstakra þátta þess kerfis, 5,3%, í þágu strandveiða? Er það eitthvað sem við gætum gert, sérstaklega þegar við horfum til þess að hluti af þessum 5,3% kerfum er eitthvað sem við getum sannarlega velt fyrir okkur hvort sé að þjóna þeim tilgangi sem upphaflega var lagt af stað með?