stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Mér er eiginlega talsvert niðri fyrir og mér er algerlega misboðið hvernig hv. þm. Sigurjón Þórðarson talaði hér áðan. Hann brigslar ráðherra ekki bara um óheiðarleika heldur að vera taglhnýtingur stórútgerðarinnar, viljaleysi ráðherra, leggur henni í orð í munn og túlkar að eigin vild það sem sagt er. Þetta er algjörlega óboðlegt. Það er eitt að hafa ólíkar skoðanir á viðfangsefninu en hitt er að vera beinlínis að segja eitthvað sem á ekki erindi í pontu Alþingis.
Virðulegur forseti. Við tölum ekki niðrandi til fólks. Hér var það gert að mínu mati. Það var hroki. Það var niðrandi tal. Það var líffræðikennsla til ráðherra af því að hún veit ekkert frekar en allir hinir vísindamennirnir. Þegar hv. þingmaður talar um að hér sé ekkert eitt rétt veit hann samt betur vegna þess að hans aðferðafræði virðist vera rétt. Þannig hefur hann talað hér í þinginu og víða annars staðar. Svo vil ég bara árétta það svona rétt í restina að það er ekki verið að velja aðra leið heldur en VG (Forseti hringir.) hefur lagt fram til þessa og á landsfundinum, hv. þingmaður sem ekki sat þar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)