stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég tel að með þessu frumvarpi sé stigið skref í rétta átt og ég styð það. Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði upp að nýju svæðaskipting aflaheimilda við strandveiðar sem var afnumin fyrir fjórum árum, þó með ákveðnum breytingum frá fyrra fyrirkomulagi. Við þær lagabreytingar sem hér voru gerðar á árunum 2018 og 2019 hafði ég verulegar áhyggjur af því að það væri rétt skref að afnema svæðaskiptingu aflaheimilda vegna þess misvægis sem þá gæti skapast milli landsvæða, eins og síðan hefur orðið raunin og rakið hefur verið hér í umræðunni. Þessum áhyggjum lýsti ég einmitt úr þessum ræðustóli við afgreiðslu þeirra frumvarpa sem urðu að lögum bæði 2018 og 2019.
Þegar horft er til strandveiðitímabilsins, maí til ágúst, er suðvestursvæðið best fyrri hluta tímabilsins en norðursvæðið og Austfirðir eru bestir síðari hluta tímabilsins. Komi til þess að strandveiðar séu stöðvaðar áður en heildartímabilinu lýkur bitnar það þar með mest á norðaustur- og austursvæðinu. Það fyrirkomulag sem ákveðið var með gildandi lögum hefur ekki reynst vel þegar litið er til jafnræðissjónarmiða þar sem afnám svæðaskiptingar aflaheimilda hefur haft neikvæð áhrif á veiðar á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Mér finnst líka mikilvægt að halda því til haga að strandveiðar fara oft fram frá byggðarlögum sem teljast til brothættra byggða, óháð því á hvaða strandveiðisvæði þau byggðarlög eru eða hvers konar útgerð fer fram frá öðrum byggðarlögum á sama svæði.
Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir sömu aðferð við skiptingu aflaheimilda milli landsvæða eins og áður var þegar aflaheimildum var skipt jafnt á strandveiðisvæðin því að nú mun skiptingin grundvallast á fjölda báta sem skráðir verða á hvert svæði fyrir sig árlega. Þannig gerir frumvarpið ráð fyrir að leitast verði við að tryggja jafnræði á milli svæða við aðgang að þeim aflaheimildum sem eru til ráðstöfunar til strandveiða árlega. Það eru því jafnræðissjónarmið sem ráða því að ég styð þetta frumvarp og mér finnst mikilvægt, óháð skiptum skoðunum á heildarumgjörð strandveiðikerfisins og mögulegum breytingum á því síðar, að gæta jafnræðis innan kerfisins eins og það er hverju sinni.