Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:28]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég treysti því að hv. þingmaður fari vel og af mikilli gagnrýni yfir þetta frumvarp og skoði ýmsa þætti þess. Ég vil sérstaklega vekja athygli á umsögn Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan telur að þessi breyting geti jafnvel valdið slysahættu, að ef ekki er tryggt að menn hafi þessa 12 daga til veiða þá fari menn að keppast við og fari þá út í viðsjárverðum veðrum. En ef menn hafa nokkuð ljóst þessa 12 daga velja þeir góðviðrisdaga. Ég tel mjög mikilvægt að skoða þann þátt og ég treysti því að hv. þingmaður geri það. Einnig finnst mér gott ef hægt er, í tengslum við þetta mál, að fara yfir þessa líffræðilegu og faglegu gagnrýni á stofnmatið. Það blasir við að það þarf að gera og það þarf að gera það málefnalega. Að telja að það sé einhver einn sannleikur til í þessu — ég er ekki með hann, en ég get alla vega bent á að það sem við erum búnir að reyna undanfarin ár að er ekki að gera sig.