Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:30]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni andsvarið. Auðvitað er mikilvægt að í umfjöllun hv. atvinnuveganefndar verði farið vel yfir allar þær ábendingar og gagnrýni sem hefur komið fram á frumvarpið og auðvitað hefur verið horft til öryggissjónarmiða við umbætur á strandveiðikerfinu áður. Eins og ég skil þetta þá er því að nokkru leyti mætt núna með því að byggja úthlutunina á aflaheimildum við skráðan fjölda báta á hverju svæði. Auðvitað hefur reynt á þetta öryggissjónarmið í kapphlaupi síðustu þriggja ára þegar fyrirséð var, eins og gerðist í fyrra, að strandveiðar yrðu stöðvaðar í lok júní. Þá var þetta sjónarmið auðvitað uppi. En á sama tíma vil ég þakka hv. þingmanni fyrir að bregðast við þeim ábendingum sem ég kom með í andsvari áðan og staðfesta að það er kannski ekki neinn einn líffræðilegur sannleikur. Í umfjöllun um líffræðina þurfum við að byggja á virðingu fyrir ólíkum rannsóknaraðferðum og auðvitað er það eitt mikilvægasta hlutverk allra vísindamanna að vera gagnrýnir bæði á eigin aðferðafræði og annarra.