Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:36]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Ég hef lagt fram breytingartillögu við frumvarpið um að 48 dagar verði þá tryggðir og að menn séu ekki að setja óþarfagrindur utan um þá litlu veiði sem þarna er vegna þess að þetta er nánast eina jafnræðið í greininni. Breytingartillagan snýst í fyrsta lagi um að tryggja þessa 48 daga og taka síðan í burtu þessa heimild Fiskistofu til að stöðva veiðarnar, og ég held að það væri mjög þarft.

Stórútgerðin talar stundum um nagandi óvissu um fiskveiðistjórnarkerfið. Ég veit ekki hvernig þeir myndu orða það sem litli maðurinn þarf að búa við. Það er líka þarft að efla strandveiðar út frá því að megnið af þeim fiski fer á markað. Ég sakna þess svolítið, ekkert svolítið heldur verulega, að ekki sé meiri umræða í þjóðfélaginu, og jafnvel í þessum tillögudrögum hæstv. matvælaráðherra, um að taka á þessu namibíska ástandi sem ríkir á Íslandi, þ.e. að fiskurinn sé seldur, að stórum hluta virðist vera, í gegnum sölufélög í skattaskjólsfélögum. Það var ágætur maður, athafnamaður, sem útskýrði það, gerði garðinn frægan hér á Alþingi fyrir nokkru, í fundaraðstöðu þingsins, beinlínis í tölvupósti til hvers þetta væri og það var til að snuða þjóðina. Ég er svolítið hissa á því, og vonandi bregst hæstv. matvælaráðherra við því í ræðu sinni, að ekki séu lagðar fram skýrari tillögur um þann þátt í nefndinni um auðlindina okkar.

Það sem kemur mér mest á óvart, þegar maður fer yfir þessar tillögur, þessar bráðabirgðatölur, úr þessari vinnu er að nánast er gert lítið úr strandveiðum og aflanum sem kemur þaðan og eiginlega úr stefnu Vinstri grænna í heild sinni í sjávarútvegsmálum. Mér finnst það dæmalaust að hæstv. ráðherra setji af stað vinnu þar sem allar áherslur flokks hennar eru í raun dregnar sundur og saman. Að vísu standast þessar fullyrðingar, um ormétinn fisk, lélegt hráefni og ég veit ekki hvað, enga skoðun og ekki heldur hvað það varðar að það þurfi að einfalda kerfið, þurrka út allar byggðatengingar og jafnvel að hætta útgerð frá stöðum og eyjum og bæjarfélögum þaðan sem stutt er á miðin. Ég man ekki í svipinn eftir öðru dæmi, herra forseti, um að ráðherra hafi lagt í jafn umfangsmikla vinnu við að rífa niður stefnu eigin flokks. Þetta er auðvitað undarlegt.

Ég held að það séu mikil tækifæri í því að skoða þetta kerfi frá grunni. Það er alveg ljóst að þessi aflaregla hefur ekki skilað 500.000 tonnum eins og hún átti að gera, ekki 400.000 tonnum við fyrstu endurskoðun og ekki 300.000 tonnum. Við erum í raun hálfdrættingar á við það sem við veiddum áður en farið var í þessa vegferð. Það á ekki aðeins við um þorskinn heldur í raun allar aðrar tegundir þannig að það eru virkilega tækifæri í þessu. Ég vil ítreka það hér í lokin að það var alls ekki ætlunin að móðga hæstv. ráðherra heldur að ýta örlítið við henni, að hún tæki við sér og færi að vinna í anda stefnu síns flokks og myndi gæta nánar að almannahagsmunum í störfum sínum og tillögum. Mér finnst það tækifæri vera í þessu máli að gera betur og þess vegna er þessi breytingartillaga lögð fram.