Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp hæstv. matvælaráðherra um raunverulega þá efnislegu breytingu sem var gerð á þessum lögum, sem við erum að ræða hér, 2019 að frumkvæði atvinnuveganefndar þar sem greininni var breytt með þeim hætti að ákvæði um skyldu ráðherra til að kveða á um skiptingu landsvæða og aflaheimilda á tímabil og landsvæði var fellt brott. Með þessu frumvarpi er verið að leggja til að tekin verði upp að nýju svæðaskipting aflaheimilda við strandveiðar sem var afnumin fyrir fjórum árum. Á þeim tíma sat sá sem hér stendur í atvinnuveganefnd og það var tekin mikil umræða um þetta og var eiginlega umræða sem stóð yfir og tók bara góðan hluta tíma þeirrar nefndar, ekki bara í einn vetur, ég held að þeir hafi verið tveir, ef ég man rétt. Fátt meira rætt á síðasta kjörtímabili í atvinnuveganefnd. Sá sem hér stendur hafði töluverðar áhyggjur af því hvaða breytingar yrðu af þessu og mér sýnist þetta allt hafa farið á versta veg miðað við það sem maður hugsaði sér. Það kemur svo sem fram í töflu í greinargerð frumvarpsins, á mynd 1, sem fylgir með. Ég var nú bara að gúgla að í fréttum Bæjarins besta á Ísafirði, á bb.is, í fyrra, þá kemur fram að á síðasta ári fóru 58% veiða fram á A-svæðinu. Það rættist. Ég sem þingmaður Norðvesturkjördæmis hafði áhyggjur af því að það myndi halla verulega á Norður- og Austurland, á C-svæði sem nær, ef ég man rétt, frá Gjögurtá og sirka að Djúpavogi. Það hefur svo sannarlega ræst og við sjáum það í tölfræðinni frá því að frumvarpið sem atvinnuveganefnd hafði frumkvæði að var samþykkt hér 2019. Þannig að ég styð þær breytingar sem hæstv. matvælaráðherra er að leggja hér fram til að breyta þessu.

Í grunninn er með þessu frumvarpi áformað að afturkalla afnám svæðaskiptingu aflaheimilda við strandveiðar. Við sjáum það líka í greinargerð þessa máls, sem er kannski grunnatriði, hvernig þróunin hefur verið síðustu ár eftir að svæðaskiptingin var afnumin varðandi aflaheimildirnar, hvernig þetta hefur þróast síðustu fjögur árin. Fyrsta árið, 2019, stóðu strandveiðar út tímabilið, þ.e. til ágústloka, en síðan árið 2020 voru strandveiðarnar stöðvaðar 19. ágúst. Árið 2021 voru þær stöðvaðar 18. ágúst, þá voru aflaheimildir fullnýttar, og á síðasta ári, 2022, voru strandveiðar stöðvaðar síðari hluta júlí. Ég held að það hafi komið fram hér hjá hæstv. ráðherra áðan og svona eftir minni þá minnir mig að það hafi verið 21. júlí á síðasta ári. Þá voru eftir þessar fimm, sex vikur fram að 1. september sem ekki nýttust þegar best veiðist og aflinn er verðmætastur á þessu svæði, C-svæðinu, sem kemur kannski einna verst út úr þessu. Við sjáum bara þegar við skoðum þessa töflu hvernig þessu er háttað.

Ég ætla nú ekki að setja á neina mikla tölu enda er ég nú að reyna að fara í gegnum minni mitt núna, um það þegar við vorum að fást við málið á sínum tíma. En svona í grunninn, og það sem mér finnst mikilvægast að komi fram hér, þá styð ég þetta frumvarp hæstv. ráðherra um þessar breytingar. Ég vildi bara koma hér upp og segja að mér sýnist að það sem maður hafði áhyggjur af á sínum tíma hafi allt ræst í framvindu mála.