stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Nú er ég enn á ný að fara í það sem við vorum að vinna með fyrir fjórum árum eða svo og reyna að muna það. Í þessum félagslegu pottum eru 5,3% og hlutdeild strandveiða í þeim pottum hefur farið mjög vaxandi, ef ég man rétt. Ég hef ekki lesið nein gögn þessa máls núna, er ekki búinn að sjá hvað kom frá Gæslunni eða annað. Árið 2009, þegar þessar veiðar hófust, strandveiðar, sem hafa átt gott mót víða, voru 3.000–4.000 tonn veidd í strandveiðunum, ef ég man rétt. Undanfarin ár hafa þetta verið 10.000–11.000 tonn. Einhvern veginn koma 11.300 tonn þegar mest var upp í kollinn en nú verð ég að segja að ég er ekki með tölfræðina uppi. (Gripið fram í.) Það skiptir verulegu máli að sýna það að afli innan þessa kerfis hefur þrefaldast frá því að kerfið byrjaði 2009. Það er bara þannig, ég held að það sé alveg ágætt, úr 3.000–4.000 tonnum í 10.000–11.000 tonn. Og með VS-aflann og annað; ég held að strandveiðarnar hafi notið þess töluvert í þessum pottum, 5,3% pottunum. Það hefur verið töluverður forgangur þar og verið flutt úr ýmsum öðrum pottum, innan þessara 5,3% potta, í strandveiðarnar. Það sem ég saknaði kannski áðan, frá hv. þingmönnum Flokks fólksins, var að ræða þetta mál, því ég hef verið að hlusta á þessa umræðu í dag, það sem snýr efnislega að því sem við erum að tala um í þessu máli. Mér fannst vera komið víða við og farið út fyrir það sem við erum að reyna að ná utan um hér í þinglegri umræðu sem mér finnst skipta verulegu máli að komi fram. Það er búið að bæta mikið og gera mikið varðandi strandveiðarnar á síðustu árum (Forseti hringir.) og ég held að það verði líka að koma fram í þessari umræðu að þar hefur orðið veruleg viðbót frá 2009.