Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[17:01]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir miður að hæstv. matvælaráðherra hafi tekið einhverja orðræðu nærri sér og ég hafi ekki sýnt henni tilhlýðilega virðingu. Það var ekki ætlunin að lítillækka hana með neinum hætti og ef hún hefur tekið eitthvert orð þannig þá biðst ég afsökunar á því, minnsta mál. En hún getur hins vegar ekki forðast þá efnisgagnrýni sem ég hef lagt hér fram. Það er í fyrsta lagi að þetta frumvarp er ekki í neinu samræmi við stefnu flokks hennar eða hvað þá það sem flokkurinn hefur boðið upp á. Síðan er hitt sú líffræði sem boðið er upp á, að það skipti engu máli hvort fiskur sé dreginn inn í Skagafirði eða í Breiðafirði, það dragist frá einhverjum potti. Líffræðin er ekki þannig. Þó svo að svo sé í einhverju reiknilíkani þá verðum við bara að horfast í augu við það að það er rangt. Ég tek ofan fyrir dr. Gunnari Haraldssyni. Hann sagði einfaldlega að aflareglan væri ekki að ganga upp. Hvað gerir maður þá? Þá galar maður ekki hér og talar bara um að vísindin séu eitthvað heilög. Þau eru það ekki. Auðvitað eigum við að taka þau til gagnrýninnar umræðu í stað þess, eins og virðist hafa verið gert á síðustu árum, að faglegri gagnrýni á þessi vinnubrögð sé stungið undir stól. Ég bara vona að hæstv. ráðherra taki þessa gagnrýni ekki persónulega, fari yfir efnisrök hennar og sjái að það er eitt og annað í þessu sem bara gengur ekki upp. Að vera ráðherra sjávarútvegsmála og flytja hér hvert frumvarpið á fætur öðru sem er bara allt annað en flokkurinn boðaði — það væri eitthvað skrýtið ef það væri ekki gagnrýnt, herra forseti.