Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[17:04]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég á nú eiginlega ekki orð yfir þetta. Þetta er alveg skýrt og það getur hver sem er farið inn á ágæta heimasíðu VG, vg.is, og bara séð samþykktir frá síðasta fundi. Það sem hæstv. matvælaráðherra er að gera hér er allt annað en boðskapurinn frá hennar flokksfélögum og mér finnst það bara lágkúra — ekki gagnvart mér sem er ekki í VG, það er alveg rétt hjá henni, en gagnvart sínum félögum. Ég vil taka það fram að á mínum litríka stjórnmálaferli hef ég stutt Vinstri græna og óháða í Skagafirði og að bjóða þessu fólki sem hefur lagt henni lið í baráttunni fyrir að komast á þing, komast í þessa áhrifastöðu, upp á þessa stefnu, að vera að flytja hér hvert málið á fætur öðru, er bara sérstakt. Og að ætla síðan að hlaupa í það skjól að menn hafi verið eitthvað óvirðulegir í tali — herra forseti, ég bara kannast ekki við það. Það hefur enginn gert athugasemd hér nema þingmenn Vinstri grænna sem hefur þótt sannleikurinn erfiður um þessa furðulegu stefnu sem er ekki í neinu samræmi við það sem félagarnir hafa lagt þeim til í nesti hingað á þingið. Ég get enda upplýst hæstv. matvælaráðherra um það að ég hef einmitt fengið nokkur símtöl frá fólki í Vinstri grænum þar sem það hefur beðið mig um að reyna að ýta aðeins við ágætri manneskju, hæstv. matvælaráðherra, þannig að hún fari að vinna eftir stefnunni. Það er verið að biðja lítinn varaþingmann Flokks fólksins um að reyna að koma örlitlu viti í það sem hæstv. matvælaráðherra er að leggja fram. Og ég skora á hana, herra forseti, að skoða þessa tillögu sem við höfum lagt hér fram til breytinga (Forseti hringir.) því að það myndi skapa sátt og því yrði fagnað í flokknum hennar.