Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[17:06]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. VG stendur fyrir jöfnuð og um það snýst þetta mál. Í stefnu okkar í sjávarútvegsmálum segir í fyrstu setningu, með leyfi forseta:

„Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á ábyrga umgengni um auðlindir hafsins, gert fortakslausa kröfu um sjálfbæra nýtingu og bent á mikilvægi grunnrannsókna og fræðilegrar þekkingar í því sambandi.“

Þetta er grunnurinn að stefnu VG í sjávarútvegsmálum og það leiðarljós sem ég fer að. Þetta er mikilvægur grunnur til að taka ákvarðanir á og á þeim grunni tek ég ákvarðanir en ekki leiðsögn hv. þingmanns sem ég afþakka.