Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

biðlistar eftir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn.

[15:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Hér í seinna andsvari tiltekur hv. þingmaður ákveðin mál. Ég kann ekki að segja nákvæmlega þá sögu eða hvort það útskýrir það að allt kerfið eða allt sem verið er að gera sé ómögulegt. Við erum hins vegar raunverulega að takast á við þessa stöðu og við viljum svo sannarlega að börnin okkar og allir þeir sem þurfa á þessari þjónustu og greiningu að halda þurfi ekki að bíða of lengi. Þess vegna þurfum við að greina mjög vel listann. Við fórum í skipulagsbreytingar, sem hv. þingmaður þekkir mjög vel, um að setja á fót geðheilsumiðstöð barna. Við fjölguðum sérfræðingum og núna er heilsugæslan, sem heldur heildstætt utan um þetta og er að horfa inn í þetta til að nýta þá aukafjármuni sem við settum til heilsugæslunnar til að takast á við þetta, inn í þessar skipulagsbreytingar, þ.e.a.s. já, við getum fengið aðstoð annars staðar frá til þess að styðja við það að ná niður biðlistum. Þannig að það er raunverulega verið að gera mjög margt einmitt til að kljást við þetta verkefni. (Forseti hringir.) Það er staðreynd og það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæðara viðhorf (Forseti hringir.) gagnvart þeim sem eru að djöflast í þessu alla daga. (Gripið fram í.)