Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum.

[15:27]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að það er mjög mikilvægt við stígum inn þegar markaðurinn brestur. Þó svo að almennu íbúðirnar eða hlutdeildarlánin eða þau önnur úrræði sem við erum með sé fyrst og fremst beint til ákveðins hóps sem er undir tekjuviðmiðum og eignaviðmiðum og er þar af leiðandi ekki á hinum almenna markaði — enda er Seðlabankinn að reyna að slá á þensluna og í raun og veru að reyna að tryggja að menn lendi ekki í vandræðum, ungt fólk, með því að fara út á markaðinn á þessum tíma — þá höfum við áhyggjur af því að það myndist þessi snjóskafl af fólki sem þarf að komast inn á markaðinn seinna. En við getum gripið utan um þennan hóp. Við munum kynna fjármálaáætlun á næstu dögum og þar munum við birta þessar tölur og væri óábyrgt að ég færi að tala um þær hér í dag í óundirbúnum fyrirspurnum. En við erum sem sagt nægjanlega lögð af stað til að geta gert þetta sómasamlega. Það er held ég mjög mikilvægt að við tryggjum það þar sem margt bendir til þess að íbúðamarkaðurinn, byggingamarkaðurinn sé smátt og smátt að botnfrjósa.