uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra varðandi fyrirhugaða uppfærslu á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það birtist frétt á vef ráðuneytisins þann 14. mars síðastliðinn þar sem birt var minnisblað, sem hafði verið undirritað eða gengið frá þann 9. þessa mánaðar, þar sem var farið yfir hin ýmsu atriði sem tengjast uppfærslunni. Það er rétt að halda því til haga að hér er um að ræða uppfærslu, ekki endurskoðun samgöngusáttmálans. Á því tvennu hlýtur að vera töluverður munur. Það sem vekur auðvitað athygli er að þessi uppfærsla virðist að meginhluta til, ef ekki að öllu leyti, eiga að eiga sér stað á forsendum Betri samgangna ohf. Þegar minnisblaðið er skoðað og tillaga að verkáætlun og hver sér um hvern þátt þá virðist meira og minna öllum verkefnum sem skipta máli vera vísað til Betri samgangna. Það er tvennt í þessu sem vekur ugg í mínum huga. Annars vegar að það virðist vera búið að útvista að fullu þeim atriðum sem snúa að samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu þannig að Alþingi komi sem minnst að málum eftir að þessi sáttmáli var undirritaður. Það undirstrikar kannski það að áætluð verklok hvað þessa uppfærslu sáttmálans varðar eru í lok júní. Hver er ekki að störfum í lok júní? Alþingi Íslendinga, sá staður þar sem fjárveitingarnar eru rammaðar inn og samþykktar. Mig langar bara að spyrja hæstv. innviðaráðherra hvort hann sé annarrar skoðunar en ég hvað þetta varðar, að með þessu sé í raun endanlega verið að kippa Alþingi úr sambandi í þessu máli, þ.e. með þessari yfirlýstu tímasetningu í lok júní hvað það varðar að uppfæra samgöngusáttmálann.