uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Virðulegur forseti. Mér heyrist hv. þingmaður vera að leggja það til að framkvæmdarvaldið megi ekki starfa nema þegar Alþingi er að störfum og það er kannski eðlilegt að Alþingi sé þá að störfum alltaf. Það sé t.d. algjörlega óhugsandi að ráðherrar skrifi undir samkomulag við eitthvert sveitarfélag eða einhvern aðila með fyrirvara um samþykki Alþingis. Það sé algerlega óhugsandi ef Alþingi sé ekki starfandi. Það segir sig náttúrlega sjálft að reginhneykslið er hugsanavilla hv. þingmanns. Það er það eina sem er hægt að segja um þetta mál. Hv. þingmaður minntist hins vegar á nokkra hluti sem voru einmitt markaðir að mínu mati nokkuð skýrt í samkomulaginu við sveitarfélögin en hafa síðan á þessu ferli þróast í þá átt að vera einhvers konar atriði sem menn eru að rífast um, þ.e. þessi mörkun verkefna, hversu langt einhver vegtenging á að vera inn í sveitarfélag, hversu mikinn hlut sveitarfélagið á að greiða, hjólastígar o.s.frv. Þess vegna er svo mikilvægt að uppfæra skipulagskostnaðinn og það sé algerlega skýrt til þess að verkið geti gengið áfram hnökralaust (Forseti hringir.) að menn séu ekki að takast á um grundvallaratriði sem í mínum huga var búið að ganga frá í samkomulaginu.