Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

efling löggæslu á Vestfjörðum.

[15:43]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar í dag aðeins að ræða um lög um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, sem voru samþykkt 2014 og tóku gildi 1. janúar 2015, þ.e. aðskilnaður lögreglu og sýslumanns sem að mínu viti var alveg gríðarlega þarft og gott verkefni og held ég að það hafi styrkt bæði sýslumenn og klárlega lögregluna.

Það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér í dag, og langar að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því, er að í þessum aðskilnaði á sínum tíma var embættunum í raun og veru skipt upp. Tekin var ákvörðun með reglugerð um hvar höfuðstöðvar sýslumannsins ættu að vera og hvar höfuðstöðvar lögreglunnar ættu að vera. Það sem mig langar að vekja athygli á hér í dag er staðan vestur á fjörðum, þar sem lögreglan er með höfuðstöðvar sínar á Ísafirði og hefur byggt upp mikla og góða starfsemi þar og er síðan með útibú á Patreksfirði. Með reglugerð nr. 1151/2014 er aðalskrifstofa sýslumannsins á Patreksfirði og sýsluskrifstofa á Ísafirði. Það sem ég hef hins vegar orðið áskynja, sem þingmaður kjördæmisins, er að meginþorri verkefnanna og starfsmannanna er staðsettur á Ísafirði, þ.e. aðalskrifstofan sem var ákveðin með þessari reglugerð 2014 er aðeins lítil og fámenn skrifstofa. (Forseti hringir.) Mig langar að heyra aðeins frá ráðherra hvort honum finnist að eigi að skoða það, eða hvort í raun og veru sé tilefni til þess að endurskoða þetta eitthvað eða alla vega ýta við sýslumanninum þannig að störf séu færð á rétta staði.