Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

efling löggæslu á Vestfjörðum.

[15:49]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég tel að við þurfum að líta á þetta í miklu stærra samhengi heldur en þau dæmi sem hv. þingmaður telur hér til. Hvort það eru fleiri eða færri störf á Ísafirði eða Patreksfirði í þessu tilfelli er kannski ekki aðalatriði málsins. Aðalatriði málsins er það að þjónustan er til staðar á báðum stöðum og það eru störf á báðum stöðum og tækifæri til uppbyggingar á báðum stöðum. Það er auðvitað ákveðið skipulagsatriði hvernig menn raða niður þessum störfum eftir því hvað fæst af mannskap og slíku. En ég hef miklu meiri áhyggjur af því að ef við tökum ekki til breytinga eins og þeirra sem ég hef verið að tala um þá verði þróunin með þeim hætti að með þeirri gríðarlegu breytingu sem er að verða á starfseminni og á þörf um starfsfólk með aðra reynslu og þekkingu þá muni þessi störf ekki lengur vera til á landsbyggðinni. Það er mikil áhætta (Forseti hringir.) í mínum huga sem er tekin og á þetta hefur verið bent í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Á þetta hefur verið bent af hálfu fjármálaráðuneytisins og fleiri aðila. (Forseti hringir.) Við erum með 53% af stofnunum undir 50 manns. Við erum með 40 örstofnanir (Forseti hringir.) á landinu og starfsemi sýslumanna fellur þar undir. Við þurfum (Forseti hringir.) að horfa til þess að geta byggt þetta upp með þeim hætti að þessi starfsemi sé tryggð (Forseti hringir.) á öllum þeim 26 stöðum sem sýslumannsskrifstofur eru á í dag.

(Forseti (BÁ): Forseti verður að taka fram að ræðutími er takmarkaður í bæði fyrirspurnum og svörum og í síðara skiptið hafa hv. þingmenn og ráðherrar aðeins eina mínútu til ráðstöfunar.)