Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

Loftslagsskattar ESB á millilandaflug.

[16:26]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir áhyggjur þeirra þingmanna sem hafa komið hérna upp í dag enda afar brýnt og mikilvægt mál. Hér hefur einnig verið talað um Brussel-vaktina og mikilvægi hennar og að hún þurfi að standa sig en sú sem hér stendur tók þátt í fundi sameiginlegu þingmannanefndar Evrópska efnahagssvæðisins, EES, ásamt öðrum góðum þingmönnum og Fríverslunarsamtaka Evrópu í Strassburg fyrr í þessum mánuði. Þar voru þessi mál m.a. rædd og lýsti ég fyrir þeim sem þar voru staddir hvers vegna væri nauðsynlegt fyrir Ísland að fá samþykkta sérstaka aðlögun fyrir landið við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Við erum því að tala máli okkar víða og allir sem vilja hlusta eru fullmeðvitaðir um stöðuna sem við erum í, þar á meðal EBS. Þeim sem þar eru í fyrirsvari fyrir þessi mál er vel kunnugt um þann vanda sem við okkur blasir og verið er að vinna að lausn á málinu. En það er auðvitað mikilvægt að vinna þetta hratt og vel því að tímaramminn er knappur. En af því að hér var rætt um landfræðilega stöðu Íslands og viðurkenningu á sérstöðunni þá er brýnt að taka það fram að það þurfti ekki 100 fundi til að fá staðfestingu og skilning þeirra á landfræðilegri stöðu Íslands, ég held að hún sé flestöllum ljós, en það þurfti hins vegar ítrekaða fundi til að ræða það að áhrifamat okkar sem var búið að gera hér á landi væri að endurspegla rétta stöðu hvað varðar Ísland og okkar stöðu. Í rauninni er búið að viðurkenna að umframáhrifin sem þetta hefur á Ísland eru meiri en á önnur lönd og það er gríðarlega mikilvægt. EES-samningurinn er mikilvægur fyrir land og þjóð. Það er vissulega rétt en líka brýnt að hér sé komið inn á það að við ætlum ekki að skorast undan loftslagsaðgerðum og loftslagsmarkmiðum heldur er það gríðarlega mikilvægt skref sem allar þjóðir verða að taka þátt í.