Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

meðferð sakamála.

428. mál
[17:01]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með framsögumanni, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, og vil líka taka undir orð hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur að um þarfa breytingu sé að ræða. Varðandi hugtakið „að nýju“ í 1. mgr. 232. gr. laga um meðferð sakamála, þá hljómar 1. mgr. svo, með leyfi forseta:

„Endurupptökudómur getur leyft samkvæmt beiðni að mál sem dæmt hefur verið í Landsrétti eða Hæstarétti verði tekið þar til meðferðar og dómsuppsögu að nýju ef fullnægt er þeim skilyrðum sem greinir í 228. gr. Þó getur dómurinn ákveðið að sömu skilyrðum uppfylltum að máli sem dæmt hefur verið í Hæstarétti verði vísað til meðferðar og dómsuppsögu að nýju í Landsrétti.“

Það er tvisvar sinnum fjallað um orðalagið „að nýju“ í 1. mgr. 232. gr. Vissulega standa orðin „að nýju“, en ég tel að það þyrfti að taka fram, eins og kemur fram í nefndaráliti með breytingartillögu sem framsögumaður gerði grein fyrir, að:

„Af úrskurði Endurupptökudóms í máli nr. 15/2022 frá 31. október 2022 má ráða að dómstóllinn telur sér ekki heimilt að vísa enduruppteknu máli, sem dæmt hefur verið í Hæstarétti, til meðferðar og dómsuppsögu í Landsrétti, nema umrætt mál hafi áður fengið meðferð í Landsrétti. Byggist sú afstaða á túlkun á orðunum „að nýju“ í 1. mgr. 232. gr. sakamálalaga“ — sem ég vitnaði hér til.

Ég tel að endurupptökudómur hefði átt, í ljósi ómöguleika þess að Hæstiréttur gæti tekið milliliðalausa sönnunarfærslu fyrir dómi — hann hefur ekki heimild til þess í lögum — og líka í ljósi þess að breyting hefur orðið á dómskerfinu með skiptingu Hæstaréttar í tvennt aftur þegar Landsréttur var stofnaður og áfrýjunardómstóllinn þá tekinn frá stjórnskipunardómstólnum — árið 1920 þegar Ísland stofnaði Hæstarétt, þá var það einfaldlega gert þannig að hæstiréttur Dana var felldur út, skorið var ofan af kerfinu og Landsyfirréttur gerður að Hæstarétti. Hæstiréttur þjóðarinnar var líka að hluta til áfrýjunardómstóll. Núna erum við að taka upp þetta kerfi aftur, við tókum aftur upp þriggjastigakerfið með áfrýjunardómstól, Landsrétti, og Hæstarétti, æðsta dómstól þjóðarinnar — ég tel í ljósi þess ómöguleika og kerfisbreytingarinnar að endurupptökudómstóll hefði átt að líta í gegnum fingur sér og ekki taka til orðanna „að nýju“ í 1. mgr. 232. gr. laga um meðferð sakamála og vísa málinu beint til Landsréttar og ekki til Hæstaréttar. Hann átti að gera það á grundvelli kerfisbreytingarinnar og ómöguleikans hjá Hæstarétti að viðhafa milliliðalausa sönnunarfærslu, sem er grundvallaratriði í sakamálaréttarfari og varið af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Því tel ég að vísa hefði átt málinu beint til Landsréttar í ljósi þessa. En þess vegna kom málið til Alþingis og við höfum leyst úr þessu. En að þessum athugasemdum loknum þá vil ég samþykkja þetta mál, ég styð það heils hugar og vona að við klárum það sem allra fyrst svo við getum tekið önnur mál á dagskrá.