Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Mánudaginn 27. mars minntu náttúruöflin enn og aftur á sig og þá staðreynd að við þurfum alltaf að vera á vaktinni í sambúð við íslenska náttúru. Mörgum brá illa þegar þeir vöknuðu við fréttir af snjóflóðum ofan Neskaupstaðar og snjóflóðahættu víðar í byggð og á vegum Austurlands. Það var sannarlega mildi að ekki urðu teljandi slys á fólki. Það er magnað að fylgjast með samstöðu íbúa og æðruleysi á svona dögum. Þá sést hvernig nota má samfélagsmiðla til góðs þar sem fólk lætur vita af sér, sendar eru kærleikskveðjur, boðin fram gisting og heilu húsin fyrir þá sem þurfa að rýma heimili sín. Ekki var síður aðdáunarvert að fylgjast með störfum viðbragðsaðila bæði heima fyrir og heildarviðbragðinu. Allir tókust á við verkefnið af miklu æðruleysi og dugnaði. Það er magnað að sjá alla þessa ólíku samráðsferla sem virkjast á svona dögum. Viðbragðsaðilar eiga allir miklar þakkir skildar.

Nú óska ég þess og bið að allt gangi vel næstu daga við vöktun, rýmingu og björgunarstörf. Förum öll varlega og skynsamlega. En atburðir eins og þessir sýna fram á mikilvægi ofanflóðavarnarmannvirkja sem reist hafa verið á undanförnum árum. Atburðirnir sýna líka fram á mikilvægi þess að þeim framkvæmdum sem eru á áætlun verði lokið sem fyrst. Við megum ekki hvika frá uppfærðri áætlun frá 2020 um að ljúka öllum framkvæmdaverkefnum til varnar ofanflóðum árið 2030. Ég bíð einmitt svara umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn minni frá því í janúar um framvindu framkvæmda. Staðan í dag og í gær ætti líka að brýna okkur til að tryggja fleiri þyrlur og bæta samgöngur á Austurlandi með fleiri jarðgöngum.