Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Þetta árið gegni ég formennsku í framtíðarnefnd Alþingis. Nefndin er á sínu fyrsta kjörtímabili innan þingsins og er að vinna að sinni fyrstu skýrslu þessa dagana. Skýrslan mun fjalla um það hvernig tæknibreytingar geta leitt til grænna umskipta. Ein lykilspurningin í því hefur verið: Munum við ná kolefnishlutleysi 2040? Í síðustu viku komu 50 manns saman, nefndarmenn í framtíðarnefnd Alþingis og helstu sérfræðingar landsins í þessu máli, og við settumst niður og ræddum þessa lykilspurningu. Punktarnir úr þeirri umræðu verða síðan notaðir til grundvallar í skýrslu nefndarinnar sem kemur út í haust.

Þessi vettvangur er mjög gott dæmi um það hvernig við getum aukið gegnsæi í ákvarðanatöku hjá okkur hérna innan þingsins. Með þessu færum við sérfræðingana nær löggjafanum, nær þverpólitíska hluta þingsins, til að búa til sviðsmyndir. Þessar sviðsmyndir geta verið mjög ólíkar, það getur svo ótrúlega margt gerst. Í þeirri vinnu sem við erum í reynum við að horfa til þess og við ræðum við sérfræðingana um hvað það geti verið. Síðan, eftir að höfum dregið fram þessar ólíku sviðsmyndir og höfum reynt að spá fyrir um framtíðina, getum við farið að rökræða það hvaða sviðsmynd er líklegust. Hvað viljum við alls ekki að gerist og hvernig getum við brugðist við því? Það er svo nauðsynlegt að við undirbúum okkur og það sé þá að einhverju leyti byggt á spjalli og öðru við sérfræðinga okkar hér inni. Svo er það náttúrlega mjög líklegt, svo því sé haldið til haga, að þegar sviðsmyndirnar verða allar tilbúnar og komnar í skýrsluna verðum við ekkert sammála um það hvað er líklegast. En við erum þó alla vega undirbúin. Þessi vinna er nefnilega mjög mikilvæg til grundvallar ákvarðanatöku.