Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í byrjun þessa mánaðar lokaði neyslurýmið Ylja. Úrræðið var tilraunaverkefni til eins árs í samstarfi Rauða krossins og Reykjavíkurborgar á grundvelli þá nýsamþykktra laga þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur. Í Ylju gat fólk komið og neytt ávana- og fíkniefna í æð undir eftirliti fagfólks, fengið ónotaðan sprautubúnað til að koma í veg fyrir sýkingar og smitsjúkdóma og notið skjóls á meðan það notaði efnin.
Árið 2021 var áætlað að rúmlega 700 einstaklingar notuðu vímuefni í æð hérlendis og færi fjölgandi. Fólk sem notar vímuefni í æð býr yfirleitt við bága félagslega stöðu og er þar með alvarlega jaðarsett og ólíklegra til að nýta hefðbundna heilbrigðisþjónustu. Ylja var því eins og vin í eyðimörkinni. Þar gafst tækifæri til að minnka heilsufarslegan skaða notandans. Mikið traust skapaðist á milli starfsfólks og notenda sem er lykilatriði í þjónustu við jaðarhópa. Það er því þyngra en tárum taki að þjónustan sé ekki lengur til staðar.
Misnotkun vímuefna er stór þáttur í ótímabærum dauðsföllum og alvarlegum veikindum ungs fólks í heiminum. Skaðaminnkandi úrræði eru til þess fallin að draga úr hættunni á hvoru tveggja. Í fjölmiðlum hefur verið sagt frá þverpólitískri sátt innan borgarstjórnar um áframhaldandi starfsemi neyslurýmis og á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er unnið að aðkomu fleiri sveitarfélaga. Það virðist því vera ríkur pólitískur vilji til staðar, sem er vel. Á meðan ekki finnst lausn tapast niður það traust sem áunnist hefur með starfsemi Rauða krossins og undir er velferð okkar minnstu bræðra og systra. Það ríður því á að finna lausn hið fyrsta svo Ylja geti starfað áfram.