Störf þingsins.
Herra forseti. Það ríkir ótti í samfélaginu. Nú eru ótrúlega margir skelfingu lostnir yfir framtíðinni, þeir vita ekkert hvað hún ber í skauti sér. Það eru blikur á lofti um að verðbólgan hafi eitthvað örlítið hjaðnað en fólkið okkar býr við vaxandi fátækt, vanlíðan og kvíða.
Ég hef ítrekað mælt fyrir frumvarpi um að fella niður undanþáguákvæði lífeyrissjóðanna frá því að greiða staðgreiðslu af greiðslu í ríkissjóð við innborgun í sjóðina. Hvað myndi það þýða fyrir ríkissjóð? Við skulum aðeins skoða tölur. Ég byrjaði að tala um þetta hér fyrir fimm árum og þá var talið að eignir lífeyrissjóðanna væru um 6.000 milljarðar og ríflega 240 milljarðar flæddu inn í þá árlega í formi lögþvingaðra lífeyrisgreiðslna. Ókei. Hvernig er staðan í dag? Eignir lífeyrissjóðanna eru nú metnar á um 6.700 milljarða kr., það eru um 300 milljarðar sem flæða inn í þessa sjóði á ári.
Mér dettur í hug að koma inn á þetta núna af því að við vitum að við erum að fara að fá fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar inn á borð, við fáum kynningu á henni á morgun. Við vitum að einhvers staðar á að höggva. Hvar skal höggva? Ég segi: Bara það að afnema þessa undanþágureglu núna, í sambandi við staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóðina, gæfi okkur á einu bretti, á einu ári, á milli 60 og 70 milljarða kr. í ríkissjóð. Ég ætla að leyfa mér að efast um að nokkur einasti lífeyrissjóðsgreiðandi myndi frekar vilja láta höggva hitt og þetta en að leggja þetta inn í okkar sameiginlega sjóð núna til að takast á við þá baráttu sem við erum að heyja núna og ættum öll að gera.