Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem hingað upp til að vekja athygli þingheims á minnisblaði frá skrifstofu Alþingis sem afhent var hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í fyrradag. Það varðar 51. gr. þingskapalaga er kveður ótvírætt á um að afhenda beri Alþingi þau gögn sem beðið er um. Þessi grein er sem sagt skoðuð í samspili, eins og það er orðað, við lögin um íslenskan ríkisborgararétt. Eins og öll í þessum sal vita hefur staðið mikil deila á milli dómsmálaráðuneytis, eða hæstv. dómsmálaráðherra, og þingmanna, ekki síst úr allsherjar- og menntamálanefnd, um afhendingu gagna er varða veitingu ríkisborgararéttar. Frá því er að segja í mjög stuttu máli að niðurstaðan er ótvíræð og myndi í öllum öðrum samfélögum sem kenna sig við lýðræði hafa tilteknar afleiðingar. Það sem hér segir í minnisblaðinu, með leyfi forseta, er að ákvæði laga um veitingu ríkisborgararéttar bindi ekki hendur Alþingis og feli ekki í sér sérákvæði gagnvart 51. gr. þingskapalaga. Á mannamáli heitir það að það ber að afhenda Alþingi þau gögn sem beðið er um, hvort sem það er um sérstök frumvörp eða önnur mál sem eru til umfjöllunar hér í þingnefndum. Það ber að afhenda þinginu gögnin og það á við um alla, líka hæstv. ráðherra, líka hæstv. dómsmálaráðherra. Niðurstaða minnisblaðsins er ótvíræð: Ákvörðun dómsmálaráðherra um að afhenda ekki gögn fer í bága við þingskapalögin.