Störf þingsins.
Herra forseti. Eins og fram hefur komið liggur fyrir lögfræðiálit frá skrifstofu Alþingis og það er nú heldur betur umhugsunarefni fyrir okkur alþingismenn. Það er alveg skýrt í álitinu að hæstv. dómsmálaráðherra braut lög þegar hann kom ítrekað í veg fyrir að Alþingi fengi gögn frá Útlendingastofnun sem þingið bað um vegna lagasetningar um ríkisborgararétt. Þetta er mikið prinsippmál fyrir okkur, alþingismenn. Mál þetta var margoft rætt hér í þingsal og ítrekað var bent á að það væri verið að fara gegn lögum. Allsherjar- og menntamálanefnd, öll nefndin, ekki bara minni hlutinn, óskaði í þrígang eftir gögnunum en það var fyrirskipun ráðherrans sem olli því að Útlendingastofnun afhenti gögnin ekki, í trássi við lög. Þarna var ráðherra að koma í veg fyrir að þingið gæti sinnt stjórnarskrárbundnu hlutverki sínu.
Dómsmálaráðherra sagði skýrt í þessum ræðustól, þegar málið var rætt og hann gagnrýndur fyrir að beita sér gegn Alþingi: „… það er mín ákvörðun að vinna þetta með þessum hætti og ég tek ábyrgð á því.“ Hver er ábyrgðin nú þegar fyrir liggur að ákvörðun ráðherrans var lögbrot sem hamlaði Alþingi í störfum sínum? Þetta hafði ítrekað bein áhrif á að allsherjar- og menntamálanefnd og Alþingi allt gæti sinnt lagaskyldu sinni með sama hætti og verið hafði um áraraðir. Nefndin öll bókaði að hún harmaði þessar tafir en ráðherra lét sér ekki segjast þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um að hann væri að brjóta lög um þingsköp Alþingis, lög sem eiga að tryggja að þingið geti kallað eftir þeim gögnum sem þingið þarf til þess að geta sinnt skyldu sinni.
Og hver verða viðbrögð þingsins þegar það liggur fyrir að einn ráðherra ber ekki meiri virðingu fyrir rétti þingsins til að kalla eftir gögnum vegna starfa sinna og lagasetningar? Hver verða viðbrögð ríkisstjórnarflokkanna og annarra ráðherra? Hvað segir hæstv. forsætisráðherra þegar fyrir liggur það mat skrifstofu Alþingis að ráðherra í ríkisstjórn hennar hafi brotið gegn lögum sem tryggja eiga rétt þingsins til að sinna sínum stjórnarskrárbundnu verkefnum? Þetta er grafalvarlegt mál sem hlýtur að kalla á hörð viðbrögð. (Forseti hringir.) Hæstv. dómsmálaráðherra hlýtur að íhuga stöðu sína alvarlega.