störf þingsins.
Forseti. Samkvæmt 21. gr. laga um þingsköp Alþingis getur þingnefnd óskað eftir gögnum frá stjórnvöldum í tengslum við mál sem eru í vinnslu hjá nefndinni og skal orðið við beiðninni innan sjö daga. Ákvæðið er skýrt og felur í sér mikilvægt verkfæri til þess að Alþingi geti sinnt sínu hlutverki.
Í fyrsta sinn í áraraðir lenti Alþingi í vandræðum með lögbundna gagnaöflun vegna máls sem þingið hafði til afgreiðslu. Voru vandræðin þau að við vinnslu umsókna um ríkisborgararétt hjá undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar haustið 2021 neituðu stjórnvöld, nánar tiltekið Útlendingastofnun, að afhenda gögnin eins og venja er. Hæstv. dómsmálaráðherra gekkst við því í kjölfarið, bæði á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar sem og í ræðustól Alþingis, að hann hefði fyrirskipað stofnuninni að hunsa beiðni þingnefndarinnar þar sem hann sjálfur teldi að téð ákvæði 51. gr. þingskapalaga ætti ekki við. Hefur hæstv. dómsmálaráðherra þannig lýst því yfir að hann beri sjálfur ábyrgð á því að gögn, sem þingnefnd óskaði eftir með vísan til laga um þingsköp Alþingis, hafi ekki borist nefndinni í samræmi við beiðni hennar þar um. Varð þetta til þess að Alþingi gat ekki sinnt umræddri löggjafarvinnu sinni venju samkvæmt. Málið var í kjölfarið tekið upp í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins, sem fjallar m.a. um embættisstörf ráðherra, og í gær barst nefndinni minnisblað frá lögfræðingum nefndasviðs þar sem þeirri spurningu var svarað hvort lög um veitingu ríkisborgararéttar gangi framar þingsköpum Alþingis með þeim hætti að upplýsingaréttur þingsins samkvæmt þingsköpum eigi ekki við. Niðurstaðan er skýr: Heimild þingnefndar til að krefjast gagna og upplýsinga frá stjórnvöldum á grundvelli þingskapalaga hefur víðtækt gildissvið, enda felur ákvæðið í sér þá meginreglu að Alþingi eigi aðgang að upplýsingum frá stjórnvöldum sem eru því nauðsynlegar til að þingið geti gegnt hlutverki sínu. (Forseti hringir.)
Forseti. Fyrir liggur að hæstv. dómsmálaráðherra hefur játað skýlaust að hafa staðið í vegi fyrir gagnasöfnun Alþingis. (Forseti hringir.) Hvernig ætlar Alþingi að bregðast við?