Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:06]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Um árabil hefur Alþingi tvisvar á ári, á grundvelli gagna frá Útlendingastofnun, veitt ríkisborgararétt fólki sem sækir um í gegnum þingið. Haustið 2021 gerðist það að stofnunin neitaði að afhenda gögnin venju samkvæmt. Nú höfum við endanlega fengið staðfest það sem augljóst var, og margítrekað hefur verið bent á, að með því að neita Alþingi um þau gögn sem þinginu eru nauðsynleg til sinnar vinnu og sem farið hefur verið fram á með skýrum hætti á grundvelli þingskapalaga hefur ráðherra gerst brotlegur við lög um þingsköp Alþingis.

Ég kem hér upp til að spyrja hæstv. forseta: Hver er afstaða forseta til þessa brots ráðherra? Hvernig telur forseti rétt að Alþingi bregðist við þegar ráðherra hefur gerst brotlegur við lög um þingsköp Alþingis?