Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Hvað á Alþingi með það að vera, eins og hv. þingmaður nefndi rétt í þessu, að grauta saman stjórnsýslumeðferð og lagasetningu? Það er nefnilega akkúrat það sem stjórnarandstaðan er að gera, að rífa út úr höndum Útlendingastofnunar mál (Gripið fram í.) sem er ekki búið að fá fullnaðarafgreiðslu, áður en …(Gripið fram í.) — (Forseti hringir.) getur þessi hv. þingmaður ekki haldið aðeins aftur af sér? — Útlendingastofnun er búin að taka málið til efnislegrar afgreiðslu? Hvað er þingið að rífa gögnin úr höndum stofnunarinnar og fara að setja lög um ríkisborgararétt í viðkomandi tilviki? Sjá menn virkilega ekki hvert þeir eru komnir? Menn eru svo spenntir fyrir því að taka mál úr höndum stofnunarinnar sem ekki hefur haft tíma til að komast að niðurstöðu í málinu — eitt væri (Forseti hringir.) ef menn hefðu áhuga á því að taka til endurskoðunar hafnanir Útlendingastofnunar en hér eru menn (Forseti hringir.) að ræða um það að áður en stofnunin er búin að taka málið til afgreiðslu, komast að niðurstöðu, (Forseti hringir.) þá vill þingið fá að taka það til sérstakrar umfjöllunar. [Frammíköll í þingsal.] Þetta snýst ekkert um það hvað lög kveða á um það sem þingið getur fengið til sín. Hér eru þingmenn bara … (Forseti hringir.)

(Forseti (BÁ): Ræðutíminn er liðinn.)

Ég hef nú fengið mest lítinn tíma til þess að klára mál mitt. (Forseti hringir.) Menn eru bara að slá ryki í augu fólks. Þetta mál snýst um allt annað. Þetta mál snýst um það að menn vilja taka yfir verkefni Útlendingastofnunar. (Gripið fram í.) (HVH: Útlendingastofnun er ekki með forræði á þessu máli … lestu minnisblaðið.)(Forseti hringir.) [Háreysti í þingsal.] (Forseti hringir.)

(Forseti (BÁ): Hv. þingmenn og ráðherrar eru beðnir að hafa hljóð í salnum.)