Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 89. fundur, 28. mars 2023.
afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Hæstv. forseti. Hvernig getur það verið að hæstv. forseti láti það viðgangast að hæstv. dómsmálaráðherra komi hér upp með atvinnuróg og dylgjur um hv. þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd? Hann endurtekur slúðrið og lygina eins langt og hún nær og eins lengi og hann getur í þeirri von að kjósendur trúi því. Lægra er ekki hægt að leggjast hér á hinu háa Alþingi, hæstv. forseti, og forseti lætur það viðgangast að hæstv. dómsmálaráðherra rægi þingmenn úr ræðustóli Alþingis.