Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

þaðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[16:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Jú, mér er kunnugt um þetta sem hv. þingmaður kom inn á hér og þau skilaboð sem ég hef fengið og kallað eftir er að það er verið að leita að aðila til þess að taka að sér það hlutverk einmitt að sinna þessum þætti sem féll niður og var kannski aðallega ágreiningurinn um í upphafi og það er nú svolítið lengra síðan en þessar vikur, þegar þetta starf var lagt niður. En það er sem sagt verið að leita að aðila í hlutastarf fagstjóra. Hvort það verði innan húss eða ekki veit ég ekki. Ég kallaði eftir svörum við því. Og aftur, maður þarf bara að ítreka samtölin og kalla eftir svörum. Þannig er það. Ég veit að það er verið að vinna geysilega mikilvæga vinnu en það er jafn mikilvægt að einhver sé með yfirsýn, ef ekki þeir sem eru í öðrum framkvæmdastjórastöðum, sérstaklega á þessu sérhæfða stigi í sálfræðiþjónustunni. (Forseti hringir.) Ég mun alveg örugglega ítreka þær fyrirspurnir en samkvæmt þeim svörum sem ég fékk, svo ég ítreki það, hæstv. forseti, til að vera nægilega skýr, þá er verið að leita eftir aðila til að taka að sér þennan skipulagsþátt.