Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[17:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Frú forseti. Þetta er rosalega mikilvægur málaflokkur sem við þurfum að sinna á mjög góðan hátt og taka áskoranirnar í þessum málaflokki mjög alvarlega. Þess vegna er ég nokkuð sáttur við hvernig uppleggið er hérna, markmiðin og almenna lýsingu á því hvað þarf að gera, hvernig stöðunni er lýst o.s.frv. Ég held að þetta sé ágætisyfirsýn yfir það hvað þarf að gera í næstu skrefum. Ég bendi t.d. á 3.C.1, þar sem talað er um þarfagreiningu vegna húsnæðis geðþjónustu Landspítala. Það þarf að gera það á fleiri stöðum heldur en bara Landspítalanum þó að það sé vissulega mikil þörf þar varðandi húsnæði. Það er líka á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í rauninni vantar bara almenna aðstöðu vegna ýmissa heilbrigðismála vítt og breitt um landið þegar allt kemur til alls. Ekkert endilega að það sé staðbundin þjónusta þar allan tímann heldur aðstaða fyrir heilbrigðisfólk sem er að koma til að sinna málefnum. Maður hefur t.d. talað við teymi hjá sýslumanni sem sér um umgengnismál barna, sem kemur náttúrlega aðeins inn á þetta. Þau eiga mjög erfitt með að koma og sinna fjölskyldum víðs vegar um landið af því að þau hafa hreinlega ekki húsnæði til að hitta fólk í og sinna þeirri þjónustu sem þar liggur undir.

Það sem ég myndi hins vegar vilja fjalla um í þessari fyrri umræðu er ekki aðgerðaáætlunin sem slík heldur það hvernig við ætlum að koma okkur á þann stað sem aðgerðaáætlunin er í rauninni að lýsa. Ég held að það sé algerlega nauðsynlegt að koma okkur á þann stað sem við sjáum í þessari þingsályktunartillögu. En í fyrsta lagi vitum við ekkert hvenær. Þessi verkefni hérna eru ekki tímasett þannig að þó að áætlunin sé til ársins 2027 segir það ekkert um það að allar þessar aðgerðir verði búnar árið 2027, sem mér finnst dálítið gagnrýnivert. Ég myndi vilja vita hvenær eigi t.d. að stofna þetta rannsókna- og nýsköpunarsetur. Verður byrjað á því 2027 og verður það kannski klárað 2030 og eitthvað, eða hvað? Þetta er hluti af því að leggja fram aðgerðaáætlun á sérstöku þingskjali, þingsályktunartillögu sem ráðherra er að leggja fram. Þetta er ekki eitthvað sem kemur að frumkvæði þingsins til þess að hvetja framkvæmdarvaldið til að vinna að einhverri aðgerðaáætlun, heldur er þetta svar framkvæmdarvaldsins við beiðni þingsins. Það segir: Við ætlum að gera þetta svona. En það vantar í þetta tíma, peninga og í rauninni ábatagreininguna. Ég held að þó að hún sé, eins og hæstv. ráðherra sagði, tiltölulega augljós þá er samt svo nauðsynlegt að hafa hana til að við vitum hvaða væntu áhrif eru af þeim aðgerðum sem við erum að fjármagna hérna, líka til þess að við getum metið það, þegar það er byrjað að framkvæma samkvæmt áætluninni hvort hún sé að skila tilætluðum árangri eða ekki. Ef hún gerir það ekki og ábatagreiningin er þannig ónákvæm þá getum við kannski metið hvort það þurfi að gera þetta einhvern veginn öðruvísi eða gera eitthvað annað til að ná tilætluðum árangri því þegar allt kemur til alls þá er það árangurinn sem skiptir máli. Það hvenær árangurinn mun koma í ljós hlýtur að skipta okkur öllu máli. Þegar við erum að velja það að segja: Já, við viljum fara hingað, þá viljum við geta svarað því af hverju og hvenær við komumst þangað. Spurningunni um af hverju er svarað með ábatagreiningu.

Við erum vöruð við, við getum orðað það þannig, í samráðskaflanum þar sem verið er að tala um fyrri áætlun. Hér er talað um að í mörgum umsögnum væri lögð áhersla á að tryggja yrði fjármögnun aðgerða og bent á að fyrri reynsla sýndi að án fjármagns væri ólíklegt að margar aðgerðanna næðu fram að ganga. Það er mjög einfalt. Í greinargerðinni tekur ráðuneytið undir mikilvægi þess að aðgerðirnar í aðgerðaáætlun geðheilbrigðismála verði fjármagnaðar. Það er svona áhugamál mitt sem nefndarmaður í fjárlaganefnd að velta því fyrir mér, vegna okkar hérna á þingi en það á að heita svo að við förum með fjárveitingavaldið, af hverju, ef Alþingi vill að þetta sé gert, það verður ekki fjármagnað. Af hverju gerist það? Er heilbrigðisráðherra í alvörunni ekki með það vald samkvæmt stjórnarskrá Íslands, af því við erum ekki með fjölskipað stjórnvald o.s.frv., er hann ekki ábyrgur fyrir sínu málefnasviði? Hann geti komið til Alþingis og sagt: Heyrðu, allt þetta sem þið vilduð gera mun kosta þessa milljarða. Ef þið ætlið í alvörunni að klára það allt þá mun það kosta 200, 300, 400 milljarða eða hvað sem það er. Það er allt heilbrigðiskerfið eins og það leggur sig, þessi hluti, 30 milljarðar eða hvað sem það er. Ráðherra spyrji þingið: Er það í alvörunni það sem þið vilduð, að fara út í þann kostnað til þess að ná þessum árangri á þessum tíma eða munum við þurfa að klára þetta á lengri tíma, af því að efnahagsmálin eru þannig? Ég velti því fyrir mér að það virðist oft vera að ákvörðunin um það hvort svona aðgerðir séu fjármagnaðar eða ekki sé ekki eitthvað sem heilbrigðisráðherra hefur neitt um að segja, þ.e. tillagan um það hversu mikið á að fjármagna, t.d. svona aðgerðaáætlun, heldur virðist upphæðin sem kemur til þingsins vera ákveðin einhvers staðar annars staðar. Þá klórar maður sér í hausnum og spyr: Bíddu, erum við þá með fjölskipað stjórnvald? Er það ráðherranefnd um efnahagsmálin o.s.frv. sem segir: Heyrðu, já, við erum ekki með svona mikinn pening í heildina þannig að þessi málaflokkur eða þetta málefnasvið verður bara fá minni pening og ráðherrann verður bara að redda því hvað á að fjármagna innan þess málefnasviðs? Á meðan fær Alþingi ekkert að vita. Já, það var víst þannig að þessi aðgerðaáætlun fær ekki allan peninginn sem hún kostar.

Mér finnst rosalega erfitt að fá svona plagg í hendurnar sem lýsir því svo vel hvað við ættum að vera að gera, því fyrr, því betra, án þess að geta séð það í nokkru samhengi við hvað það mun kosta og hvenær við munum ná þeim árangri. Það er ýmislegt í þessari greinargerð sem bendir til þess. Ég pæli t.d. í því líka að fyrri aðgerðaáætlun kláraðist ekki, mikilvæg markmið náðust ekki eins og niðurstaðan varð í rauninni hvað það varðar. Þá hljótum við að þurfa að klára það fyrst. Ég myndi giska á að það kosti eitthvað. Er fjármögnunin í þessum málaflokki þá að hluta til til þess að klára aðgerðir í fyrri aðgerðaáætlun eða erum við bara hætt við einhverjar aðgerðir þar?

Það eru svona spurningar sem ég á dálítið erfitt með af því að, eins og ég sagði hérna áðan í andsvari við ráðherra, þá tæknilega séð þarf ríkisstjórnin ekki að koma með svona þingsályktunartillögu. Hún getur einfaldlega lagt þetta fram í fjármálaáætlun þar sem stefna stjórnvalda á að birtast. Vissulega er þingið að biðja um að þessu verði vinsamlegast skilað á svona hátt, en þá myndi ég búast við því að þetta væri nær því að vera eins og samgönguáætlun, sem er vel tímasett, þar er vel útskýrt hver kostnaðurinn er. Ég held að við ættum að gera meira einmitt af því þannig að við getum rætt fjármögnun ýmissa svona stórra verkefna, stórra samfélagslegra verkefna, í heildarsamhengi þess málaflokks, í heildarsamhengi þeirra áskorana, og borið saman við það svigrúm sem við höfum með tilliti til ríkisfjármálanna. En eins og er þá höfum við það ekki þannig að ég vonast til að betur verði gert næst hvað það varðar.