aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Frú forseti. Sálfræðiþjónusta, gott aðgengi að sálfræðiþjónustu, óháð stétt og stöðu, er risastórt velferðarmál og mannréttindamál. Það er í raun ótrúlegt til þess að hugsa að þótt klínískar leiðbeiningar mæli almennt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta meðferðarúrræði við langflestum geðröskunum og þótt rannsóknir á þessari meðferð hafi trekk í trekk sýnt fram á góðan árangur þá stóð slík meðferð ekki til boða og var ekki hluti af grunnþjónustu hér á Íslandi og ekki skilgreind þannig fyrr en eftir að fyrsta stefna og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum var samþykkt árið 2016. Þetta er kannski til marks um það hversu stutt við erum komin í geðheilbrigðismálum og hvernig málaflokkurinn hefur verið vanræktur. Það er ekki nóg með að Íslendingar verji minna fjármagni almennt til heilbrigðismála heldur en hinar Norðurlandaþjóðirnar, heldur er hlutfall útgjalda sem rennur til geðheilbrigðismála líka lægra hér en þar þannig að geðheilbrigðismál fá minni sneið af minni köku.
Í ljósi þessa verð ég að segja að ég sakna svolítið umfjöllunar um fjármögnun í þessari aðgerðaáætlun. Það er minnst aðeins á hana í greinargerð á einum stað þar sem ráðuneytið tekur undir mikilvægi þess að aðgerðir í aðgerðaáætlun geðheilbrigðismála verði fjármagnaðar. Hæstv. ráðherra kom auðvitað aðeins inn á þetta áðan og mér skilst á honum að þetta sé svona hálffjármagnað kannski núna í bili, en það hefði hugsanlega verið gott að taka þessa umræðu í rauninni eftir kynningu á fjármálaáætlun til að fá einhverja mynd á það hvort þessi vilji heilbrigðisráðuneytisins sem kemur fram í greinargerðinni muni raunverulega ganga eftir samkvæmt þeim áætlunum sem nú er unnið eftir þegar kemur að fjárveitingum. Svona áætlun verður auðvitað bæði að vera fjármögnuð og tímasett og mælanleg.
Það er margt í þessari áætlun sem lofar góðu og af því að það hefur verið sérstakt áherslumál hjá okkur í Samfylkingunni vil ég nefna sérstaklega í þessu sambandi aðgerð 3.C.1, að gerð verði þarfagreining vegna húsnæðis geðþjónustu Landspítala. Þetta er í takt við þingsályktunartillögu sem við höfum flutt núna þrjú löggjafarþing í röð um að heilbrigðisráðherra verði falið að hefja þennan undirbúning og að skipaður verði starfshópur sem annist frumathugun, þarfagreiningu og húsrýmisáætlun vegna verksins. Það er mikið fagnaðarefni að þetta hafi ratað inn í áætlunina og við í Samfylkingunni munum auðvitað halda stjórnvöldum við efnið og ýta á eftir þessu risastóra verkefni.
Virðulegi forseti. Með fullri virðingu fyrir fleiri góðum og mikilvægum málum í þessari aðgerðaáætlun þá er ræðutíminn hérna ósköp takmarkaður og ég ætla að reyna að nýta hann til að benda á atriði sem ég held að mættu betur fara. Það er auðvitað þannig að án sálfræðiþjónustu og án sálfræðinga geta heilsugæslustöðvar ekki boðið meðferð við algengum geðvanda í takt við klínískar leiðbeiningar og viðmið. Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður innan heilbrigðiskerfisins og þar verður að standa til boða viðeigandi gagnreynd meðferð við geðvanda. Í síðustu aðgerðaáætlun var að finna tiltölulega skýra aðgerð um þetta. Þar eru markmiðin tiltölulega skýr, að fólk geti fengið meðferð og stuðning sálfræðinga vegna algengustu geðraskana á heilsugæslustöðvum. Það er skýrt hverjir eiga að framkvæma þetta. Það eru sálfræðingar með klíníska reynslu og þjálfun í gagnreyndri meðferð. Það er skýrt hvert tímabilið er, 2016–2019, og svo eru mælanleg markmið þarna, að aðgengi að gagnreyndri meðferð sálfræðinga við algengustu geðröskunum, svo sem þunglyndi, kvíðaröskunum og áfallastreitu, sé á 50% heilsugæslustöðva í árslok 2017 og 90% í lok 2019. Þetta er skýrt og þetta er tímasett og þetta er mælanlegt, árangurinn er mælanlegur. Núna fjórum árum eftir að gildistíma þessarar áætlunar lauk þá liggur auðvitað fyrir að sálfræðiþjónusta heilsugæslunnar er mjög langt frá því að vera fullmönnuð og fyrir vikið bíða hundruð barna og hundruð fullorðinna í fleiri mánuði og jafnvel ár eftir þjónustu og eftir gagnreyndum meðferðarúrræðum.
Hér vil ég vitna í umsögn frá Liv Önnu Gunnel, fagstjóra hjá sálfræðiþjónustu Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, en hún bendir á að á þessum biðlistum sé jafnvel fólk sem er að glíma við vanda sem væri hægt að leysa með viðeigandi aðferðum á örfáum vikum, fólk sem þyrfti aðeins greitt aðgengi að sérhæfðri sálfræðiþjónustu í stuttan tíma til þess að ná betra jafnvægi í líðan og til þess að geta sinnt sínum daglegu skyldum. Geta til að sinna námi og vinnu eykst ef þessi úrræði eru til staðar og það liggur auðvitað fyrir að annars geta einkenni versnað og þörf fyrir dýrari úrræði eykst. Við erum að tala um manneskjur hérna en ekki hagtölur og þjóðarbúið og verga landsframleiðslu en ég held að það hljóti allir að sjá að þetta er þjónusta sem er þjóðhagslega hagkvæm. Hún hefur jákvæð áhrif á framleiðni og hagvöxt til lengri tíma. Það er enginn sparnaður fólginn í því að fjársvelta þessa þjónustu heldur þvert á móti, með því er bara verið að búa til skuld sem samfélagið greiðir þá einhvern tíma seinna. Ég vona að ráðherrar og þingmenn hafi þetta á bak við eyrað núna þegar fjármálaáætlunin verður kynnt á næstu dögum.
Það liggur fyrir að í alþjóðlegum viðmiðum, m.a. í reikningum breskra heilsuhagfræðinga og út frá erlendum fyrirmyndum, er gengið út frá því að það þurfi tvo meðferðaraðila á hverja 6.250 íbúa til þess að það sé hægt að veita viðeigandi sálfræðimeðferð við algengasta geðvanda. Út frá þessu þyrfti að tvöfalda fjölda meðferðaraðila á heilsugæslustöðvum. Ríkisendurskoðun skilaði mjög ítarlegri skýrslu um stöðu geðheilbrigðisþjónustunnar í fyrra og segir þar m.a. að heilsugæslurnar anni ekki þörf fyrir sálfræðiþjónustu. Það þyrfti að tvöfalda fjölda sálfræðinga á landsvísu til að mæta markmiði stjórnvalda. Ríkisendurskoðun segir, með leyfi forseta:
„Það verður að teljast ólíklegt að það náist þar sem heilbrigðisráðuneyti gerir ráð fyrir óbreyttum fjárveitingum fyrir áframhald verkefnisins. Hvorki voru skilgreind viðmið um fjölda sálfræðinga í aðgerðaáætluninni né í athugasemdum við þingsályktunartillöguna.“
Hér er verið að tala um síðustu aðgerðaáætlun. Ég vona að ef ríkisstjórninni sé alvara með fögrum fyrirheitum um eflingu geðheilbrigðisþjónustu verði gert ráð fyrir stórauknum fjárveitingum til þessara verkefna.
Ég verð að viðurkenna að mér finnst sú aðgerð í nýju aðgerðaáætluninni sem lýtur að sálfræðiþjónustu í nærsamfélaginu ekki standast þær kröfur sem við hljótum að gera miðað við mikilvægi þessarar þjónustu. Þetta er mjög loðið og almennt orðað. Það er ekkert minnst á að fjölga stöðugildum og fullmanna þessa þjónustu. Í þessu samhengi vil ég vitna í umsögn Emils Einarssonar, yfirsálfræðings hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, sem lýsir bara áhyggjum almennt af þessari aðgerðaáætlun, hún snúist fyrst og fremst um að mynda einhverja hópa utan um verkefni í stað þess að kveðið sé á um beinar og mælanlegar aðgerðir. Það sé í raun verið að verja mjög miklum kröftum, tíma og fjármagni í svona skipulagsvinnu frekar en meðferðarvinnu og fjölgun stöðugilda. Það er t.d. kveðið á um að skipa hóp sem á að meta mönnunina meðan mönnunin sjálf er ekki sérstök aðgerð í þessari áætlun. Þetta er bara eitt dæmi. Staðreyndin er auðvitað sú að það sárvantar fólk á gólfið frekar en einhvern enn einn starfshóp eða enn eina skýrsluna. Í þessu samhengi leyfi ég mér að vitna líka í Pétur Maack, sem er yfirsálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Hann segir að það megi líkja þessari aðgerðaáætlun við, með leyfi forseta, „illa skilgreint áramótaheit manns sem langar að taka líf sitt í gegn en veit ekki hvort hann á að byrja að taka svefninn í gegn, mataræðið, hætta að drekka eða kaupa kort í ræktina, valkostirnir verða svo flóknir og yfirþyrmandi að hann gefst upp á verkefninu áður en hann kemst til að byrja“. Ég ætla að brýna það fyrir ráðherra að falla ekki í þá gryfju sem Pétur lýsir hér.
Það liggur fyrir að það þarf að fjölga stöðugildum til að ná þessum markmiðum sem hér er kveðið á um. Það þyrfti, eins og Ríkisendurskoðun bendir á, að tvöfalda fjölda sálfræðinga á landsvísu til að mæta markmiðum stjórnvalda. Mér finnst þetta vanta inn í aðgerðaáætlunina, (Forseti hringir.) að það sé kveðið sérstaklega á um eflingu þessarar þjónustu og ekki bara eflingu þjónustunnar heldur mönnunina sjálfa, (Forseti hringir.) að það séu sett einhver skýr mælanleg markmið um fjölgun stöðugilda.