aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að nýta tækifærið og þakka hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir þessa mikilvægu tillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til næstu fimm ára, en það er jú afar mikilvægt þegar við setjum okkur stefnu að henni fylgi aðgerðaáætlun. Töluverðar framfarir hafa orðið í geðheilbrigðismálum hér á landi á undanförnum árum en betur má ef duga skal. Sýnir skýrsla Ríkisendurskoðunar, sem var birt í maí 2022, vel fýsileika þess að efla geðheilbrigðisþjónustu í landinu enn frekar. Með auknu fjármagni hefur geðheilbrigðisþjónusta verið efld og þá hefur þverfagleg geðheilbrigðisþjónusta hjá heilsugæslunni um land allt einnig verið styrkt til muna. Geðheilsumiðstöð barna var stofnuð í apríl 2022, sálfræðingum hefur fjölgað og almennt geðheilbrigðisteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið styrkt á landsvísu. Einnig hafa verið stofnuð sérstök geðheilsuteymi fyrir fanga, fyrir fjölskyldur, fyrir taugaþroskaraskanir og ADHD-greiningar fullorðinna.
Fyrsti fasi var einmitt að setja á fót teymi en nú er komið að því að halda áfram veginn. Það er afar mikilvægt að við séum að meta fyrirkomulagið, árangurinn og svo einnig þörfina fyrir þjónustuna. Það mat þarf að liggja fyrir til grundvallar eflingar á þjónustunni. Það er einnig mikilvægt að við tökum saman hver þjónustuþörfin er annars vegar í dag og hins vegar líka til framtíðar. Aðgerðaáætlunin snýr að því að kanna nánar samfellu í geðheilbrigðisþjónustu svo hægt sé að sjá betur hvar úrlausna er þörf. Góðu fréttirnar eru þær að stefna í geðheilbrigðismálum var samþykkt á síðasta þingi og þar erum við að nálgast málaflokkinn heildstætt. Heilbrigðiskerfið er komið með leiðarvísi og skýrt umboð Alþingis til að setja geðheilbrigði á oddinn. Verkefnið sem er fram undan er krefjandi og áskoranirnar vissulega margar en við vitum að með réttum áherslum og réttri forgangsröðun munum við færast áfram veginn og treysta hag geðheilbrigðisþjónustu um allt land.
Frú forseti. Hér ræðum við tillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum en hún er byggð á fjórum meginþáttum. Fyrsti hluti hennar varðar geðrækt, forvarnir og mikilvægi heildrænnar heilsueflingar. Þessi hluti varðar grundvallarþætti vellíðunar og áhrifaþætti geðheilbrigðis þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að hlúa að geðheilbrigði alla ævi. Annar hluti áætlunarinnar lýtur að því að heildræn geðheilbrigðisþjónusta verði samþætt og hún muni byggjast á bestu mögulegu gagnreyndu meðferðum og endurhæfingu. Það er afar mikilvægt að við séum hér að samþætta þjónustuna og jafnvel einmitt líka að brjóta niður þessi títtnefndu síló. Notendasamráð og notendamiðuð þjónusta á öllum stigum geðheilbrigðisþjónustu er gerð að meginatriði í þriðja hluta áætlunarinnar en slíkt samtal þarf að leiða til þess að geðheilbrigðisþjónusta á Íslandi verði í vaxandi mæli notendamiðuð og áherslan þar sé lögð á valdeflingu notenda. Í fjórða og síðasta hlutanum er sett aukin áhersla á nýsköpun og vísindi og þróun og bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Í langan tíma hefur samhæfingu milli þjónustukerfa verið ábótavant og rætt um að brjóta niður svokölluð síló, eins og ég nefndi hér fyrr í ræðu minni, og vinna þvert á stofnanir og ná aukinni samhæfingu. En þjónustuframboð í heilbrigðiskerfinu er mismunandi á landinu og samhæfing þjónustunnar getur þar af leiðandi verið erfið og flókin og þegar kemur að notendum velferðarþjónustu þurfum við að nálgast þá þjónustu sem þörf er á hverju sinni. Á undanförnum árum höfum við stigið viss og ákveðin skref í átt að betra verklagi. Fjarheilbrigðisþjónusta hefur verið efld, þverfagleg geðheilbrigðisþjónusta í heilsugæslu og nærumhverfi hefur verið styrkt og þverfagleg geðheilsuteymi hafa verið stofnuð. En þrátt fyrir að mörg skref hafi verið stigin í átt að betri samþættingu og samhæfingu í geðheilbrigðisþjónustu er enn þó nokkuð í land.
Í tillögunni segir, með leyfi forseta:
„Áríðandi er að allir landsmenn hafi jafnan og greiðan aðgang að notendamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu sem byggist á bestu þekkingu á hverjum tíma, er einstaklingsmiðuð, samfelld, samþætt, valdeflandi og batamiðuð. Geðheilbrigðisþjónustan þarf að vera í nærumhverfi notanda eða á viðeigandi heilbrigðisstofnun sem starfrækt er í bataeflandi húsnæði. Gera þarf skipulag geðheilbrigðisþjónustu skýrara þannig að það stuðli að samstarfi milli þjónustustiga og þverfaglegri teymisvinnu.“
Hér er um að ræða afar mikilvægt skref í átt að því að móta aðgerðir sem snúa að auknu aðgengi notenda heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni því þar er úrbóta sannarlega þörf.
Einnig er að hefjast vinna hjá heilbrigðisráðuneytinu, grænbókarvinna, um stöðu ADHD á Íslandi til að reifa stöðu málaflokksins og fara yfir stöðu þekkingar, meðferðar og úrræða við ADHD. Mikil aukning hefur verið á undanförnum árum í þjónustu vegna gruns um ADHD, bæði hjá börnum og fullorðnum. Ástæðan fyrir aukningunni er ókunn en aukin vitundarvakning í samfélaginu gæti verið einn þátturinn.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að í þessari vinnu eigi að fara yfir helstu áskoranir sem hægt er að tengja ADHD og framtíðarsýn en grænbækur og vinna við þær eru til þess fallnar að örva umræðuna og kortleggja sérstök mál á landsvísu. Vinnan er unnin út frá samráðssjónarmiðum þannig að haghöfum er boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi málefnið en helsta áskorunin, eins og hefur komið fram í umræðunni, er mönnun þjónustunnar en einnig þarf að rýna skipulag.
Greiningar barna fara fram á öllum stigum heilbrigðisþjónustunnar. Þyngri geðtengdar greiningar fara aðallega fram innan annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. ADHD-greiningar fara núna flestar fram innan annars stigs heilbrigðisþjónustu sem ný geðheilsumiðstöð barna flokkast undir en hún var einmitt sett á fót 1. apríl 2022 og hefur það meginhlutverk að veita börnum og fjölskyldum þjónustu á landsvísu og sameinar þá þjónustu sem Þroska- og hegðunarstöð, Geðheilsuteymi fjölskylduvernd og meðferðarteymi fyrir börn og unglinga hafa veitt hingað til. Markmið endurskipulagningarinnar var og er að efla enn frekar geðþjónustu við börn og fjölskyldur þeirra með sérstakri áherslu á að stytta bið eftir þjónustu. Þetta markmið er í samræmi við heilbrigðisstefnu og geðheilbrigðisstefnu varðandi veitingu árangursríkrar og tímanlegrar heilbrigðisþjónustu á réttu þjónustustigi. Það er afar mikilvægt að bið eftir greiningu verði skoðuð sérstaklega, sem og bestu meðferðarmöguleikar, eftirfylgd og staða annarra úrræða en lyfja. Samkvæmt nýjum tölum frá Geðheilsumiðstöð barna hefur börnum sem bíða eftir einhverfu- eða ADHD-greiningu fjölgað hratt síðustu árin. Þá er stærsti einstaki útgjaldaliður lyfja samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands ADHD-lyf og niðurgreiðsla ríkisins fyrir þau lyf á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs nam 1,2 milljörðum kr. sem er afar stór upphæð. Við sem samfélag þurfum einnig að skoða vel hvað við sjálf getum lagt af mörkum þegar tekið er utan um þennan málaflokk. Félagslegi þátturinn skiptir gríðarlega miklu máli líkt og hann gerir á mörgum öðrum sviðum.
Það er afar ánægjulegt að hér sé komin fyrir þingið aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til næstu fimm ára. Ég vil trúa því að á næstu árum muni hún gera heilbrigðisstarfsfólki okkar auðveldara að taka enn betur utan um þá einstaklinga sem virkilega þurfa á aukinni aðstoð að halda og vil hvetja hæstv. heilbrigðisráðherra til dáða í þessum verkum.