Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[18:11]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seinna andsvar. Ég er sammála þessu með forvarnirnar, þær eru margs konar. Það er kannski best að byrja á því að grípa börnin af því að þar er framtíðin. Engu að síður þá er það líka staðan — rétt eins og þegar við erum í flugi þá þurfum við að setja á okkur grímuna áður en við setjum hana á börnin — að ef börn búa inni á heimilum þar sem foreldrar eða aðrir fjölskyldumeðlimir eiga við flóknar geðrænar áskoranir að stríða þá getur það orðið býsna þungur baggi að fara með út í lífið. Eins ef börn alast upp við að einhver úr systkinahópnum er að glíma við flóknar geðrænar áskoranir, þá skortir kannski líka að við tökum utan um alla fjölskylduna. Þar skera geðheilbrigðismálin sig nokkuð úr. Ef foreldri eða barn greinist með annars konar lífsógnandi sjúkdóm, enda getur þetta verið lífsógnandi sjúkdómur eins og dæmin sýna, þá erum við oftar en ekki með gott teymi sem kemur og grípur fjölskylduna alla. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til þess að spyrjast fyrir um þennan hluta forvarna, hvernig er tekið utan um fjölskyldur þegar einn einstaklingur innan fjölskyldu er að eiga við flóknar geðrænar áskoranir. Mig grunar að stuðningsnetið við fjölskylduna í slíkum aðstæðum sé býsna lítið og ég held að það bara helgist af (Forseti hringir.) gömlum fordómum gagnvart geðrænum áskorunum.