Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 90. fundur,  29. mars 2023.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í 1. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir, með leyfir forseta: „Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“ Í 2. gr. stjórnarskrárinnar segir, með leyfi forseta: „Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Forseti og önnur stjórnarvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdarvaldið. Dómendur fara með dómsvaldið.“

Í 51. gr. laga um þingsköp Alþingis segir, með leyfi forseta:

„Ef að minnsta kosti fjórðungur nefndarmanna krefst þess að nefnd fái aðgang að gögnum frá stjórnvöldum, þ.m.t. sjálfstæðum stjórnvöldum, eða að teknar verði saman upplýsingar út af máli sem nefndin hefur til umfjöllunar skal stjórnvald verða við beiðni nefndarmanna þess efnis eins skjótt og unnt er og eigi síðar en sjö dögum frá móttöku beiðninnar. […] Því aðeins er heimilt að takmarka aðgang nefndar að gögnum að hagsmunir hennar af því að kynna sér efni þeirra eigi að víkja fyrir mun ríkari opinberum hagsmunum eða einkahagsmunum. Rökstyðja skal slíka synjun skriflega.“

Um árabil hefur Alþingi afgreitt umsóknir um ríkisborgararétt tvisvar á ári. Það hefur farið þannig fram að Alþingi óskar eftir tilteknum gögnum frá Útlendingastofnun sem veitir þær samkvæmt lögum. Þar til hæstv. dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson tekur við. Þá gerist það að gögnin fást ekki afhent. Skýringar á því hvers vegna gögnin fengust ekki afhent hafa verið ýmsar. Fyrsta skýringin var sú að það væri svo mikið að gera hjá Útlendingastofnun að hún hefði ekki tíma til þess. Önnur skýringin var sú að það væri ósanngjarnt að fólk gæti sótt um til Alþingis á meðan það tekur heilt ár að afgreiða umsóknir hjá Útlendingastofnun, sem er allt annað ferli og kemur okkur ekkert við, það væri ósanngjarnt að þetta tæki styttri tíma að fara í gegnum þingið. Með öðrum orðum (Forseti hringir.) að það væri ósanngjarnt að Alþingi ynni sína vinnu hraðar. Þriðja skýringin var sú að Alþingi hlustaði ekki (Forseti hringir.) á skoðun Útlendingastofnunar á því hverjir eiga að hljóta ríkisborgararétt. Þetta eru skýringarnar sem hafa verið gefnar. (Forseti hringir.) Fjórðu skýringuna heyrðum við svo hjá hæstv. fjármálaráðherra í gær; að gögnin séu einfaldlega ekki tilbúin.

Herra forseti. Þetta snýst hins vegar ekkert um það hvort Alþingi eigi að veita ríkisborgararétt (Forseti hringir.) eða hvernig það er gert. Það er Alþingis að breyta því. (Forseti hringir.) Þetta snýst um það að hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni er að vanvirða Alþingi (Forseti hringir.) með því að koma í veg fyrir að Alþingi geti sinnt lögbundnum störfum sínum.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í störfum þingsins er aðeins tvær mínútur, en ekki tvær mínútur og þrjátíu og níu sekúndur.)