málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar).
Markmið frumvarpsins er að sameina alla þjónustu sem snýr að innflytjendum, flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd hjá einni stofnun með það í huga að ná meiri skilvirkni og enn betri þjónustu en nú þykir vera í málaflokknum. Sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs virðist best til þess fallin að uppfylla það markmið. Með sameiningunni munu innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd geta leitað á einn stað og sótt þar þá þjónustu sem þeim stendur til boða sem mun einfalda og auka skilvirkni samstarfs ríkis og sveitarfélaga í málaflokknum. Um leið og sameiningin fer fram verður starfsemi Fjölmenningarseturs í núverandi mynd felld niður og verður Vinnumálastofnun framkvæmdaraðili laga um málefni innflytjenda.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frekar frá því í nefndaráliti en það liggur frammi.
Í kjölfar umfjöllunar um málið vill meiri hlutinn árétta eftirfarandi atriði:
Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins og leggur áherslu á að sameining stofnananna muni auka skilvirkni og þjónustu í málaflokknum. Meiri hlutinn vill sérstaklega benda á hversu mikilvægt hlutverk Fjölmenningarseturs hefur verið frá stofnun þess. Mikilvægt er að halda til haga að reynsla og þekking hefur skapast í störfum þess og eins hefur verið mikið traust til Fjölmenningarseturs sem mikilvægt er að tapist ekki við sameininguna.
Þá vill meiri hlutinn árétta að hlutverk Fjölmenningarseturs er bundið í lög um málefni innflytjenda og að með frumvarpinu eru viðfangsefni þess ekki úr sögunni heldur munu verkefni Fjölmenningarseturs flytjast til Vinnumálastofnunar við sameininguna. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á mikilvægi þess að sú reynsla og frumkvöðlavinna sem unnin hefur verið í Fjölmenningarsetri undanfarin ár flytjist til Vinnumálastofnunar. Með sameiningunni skapast tækifæri til að efla þjónustu við innflytjendur um allt land þar sem Vinnumálastofnun er með starfsstöðvar um allt land, en í dag er Fjölmenningarsetur einungis á tveimur stöðum.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að athugasemdir hafi borist í samráðsgátt stjórnvalda við það að heiti Vinnumálastofnunar verði óbreytt við sameiningu stofnananna. Þau sjónarmið komu einnig fram við meðferð málsins í nefndinni. Þá kemur fram í greinargerð að á næstu misserum sé gert er ráð fyrir að enn frekari breytingar verði á þeim verkefnum sem falla undir málefnasvið Vinnumálastofnunar. Meiri hlutinn leggur ríka áherslu á að heiti sameinaðrar stofnunar verði endurskoðað svo að það endurspegli betur þau verkefni sem hún mun hafa með höndum ef frumvarp þetta verður að lögum. Núverandi heiti endurspeglar ekki nægilega vel þá breytingu á starfsemi stofnunarinnar sem felst í yfirfærslu lögbundinna verkefna Fjölmenningarseturs. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að breyta heiti stofnunarinnar til samræmis við nýtt hlutverk hennar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Óli Björn Kárason. Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsir sig samþykkan álitinu.