Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 90. fundur,  29. mars 2023.

lögheimili og aðsetur.

895. mál
[16:53]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar í andsvarinu. Varðandi seinni spurninguna þá tel ég ekki að verið sé að setja markið neitt sérstaklega hátt. Það að fá dulið lögheimili eða að geta falið lögheimili sitt verður og hlýtur að vera undantekning, einfaldlega vegna þess að ýmis réttindi eru tengd lögheimili fólks. Þess vegna ætti það almennt að teljast til undantekninga og grundvallast á brýnni þörf.

Þegar ég svara fyrri spurningunni þá kannski skýrir það af hverju ég tel að ekki sé verið að setja háan þröskuld. Það þarf auðvitað ekki að liggja fyrir dómur heldur er þetta þá mál sem er í ferli. Eins og kom fram í framsögunni er einnig fjallað um þetta í 12. gr. reglugerðar nr. 1277/2018, sem fjallar um lögheimili og aðsetur. Einstaklingur sem óskar eftir því að lögheimili hans og fjölskyldu hans sé dulið þarf að sýna fram á það með staðfestingu frá lögreglustjóra að hann og fjölskylda hans séu í hættu. Beiðni um dulið lögheimili getur einnig komið frá lögreglustjóra ef lögreglan metur aðstæður þannig að viðkomandi eigi erfitt með að óska eftir því sjálfur. Í staðfestingu lögreglustjórans þarf að koma fram að viðkomandi sé í hættu, og það er þá mat lögreglunnar, sem og alvarleiki hættunnar. Ég tel að þetta sé nokkuð skýrt þó að ég geri mér alveg grein fyrir því að þarna geti verið mismunandi sjónarmið.