Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.

782. mál
[13:49]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Ég styð þetta mál í prinsippinu. Hins vegar er hér gerð mikilvæg tillaga og einföld um breytingar á þessu sem kveður á um að staðan verði metin aftur eftir tiltekinn tíma. Ástæðan er ekki síst sú að undirbúningurinn að þessari breytingu hefur sætt talsverðri gagnrýni og hafa ýmis flögg verið reist á loft þar. Í raun treysti ég því að fólk hljóti að vera sammála um að hægt sé að samþykkja þessa breytingartillögu um að við metum stöðuna að tilteknum tíma liðnum.