Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.

782. mál
[13:51]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um tillögu sem ég styð ekki. Þar með er ekki sagt að ekki sé hægt að gera úttekt á þessari sameiningu að ákveðnum tíma liðnum. Það getur raunar verið mjög skynsamlegt og það er hægt að gera eftir ýmsum leiðum. Það er von á frekari breytingum á löggjöf um Vinnumálastofnun, m.a. hefur nefndin kallað eftir því að nafninu verði breytt í nefndaráliti í framhaldi af breyttu hlutverki og breyttu lagalegu hlutverki sem flyst til stofnunarinnar, en hefur verið lagalegt hlutverk Fjölmenningarseturs til þessa. Að því leyti eru meiri hluti og minni hluti sammála því að það er mikilvægt að fylgjast með því hvernig til tekst með breytinguna en ekki endilega skynsamlegt að kveða á um það í lögum hvernig þeirri eftirfylgni verði háttað.