náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 6/2013. Frumvarpið felur í sér almennt bann við að skilja eftir úrgang í náttúrunni. Í 17. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, er að finna ákvæði um að almenningi sé heimil för um landið í lögmætum tilgangi en að þeim rétti fylgi skylda til að ganga vel um náttúru landsins. Ákvæðið felur því annars vegar í sér rétt almennings til að ferðast um landið og dvelja þar og hins vegar almenna skyldu til góðrar umgengni. Í 3. mgr. 17. gr. er svo skyldan nánar útfærð og segir þar að skylt sé að gæta fyllsta hreinlætis og skilja ekki eftir sorp eða úrgang á áningarstað eða tjaldstað. Lagt er til að kveðið verði með skýrari hætti á um það í lögunum að í þeirri skyldu felist almennt bann við að skilja eftir úrgang í náttúrunni í stað þess að einskorða skylduna við áningarstað eða tjaldstað.
Megintilgangur frumvarpsins er að auka skýrleika laganna með því að kveða á um almennt bann við að skilja eftir úrgang í náttúrunni og útvíkka þá skyldu sem felst í góðri umgengni um náttúruna. Rímar það enda betur við markmið laga um náttúruvernd, sem er m.a. að stuðla að samskiptum manns og náttúru þannig að hvorki spillist líf eða land, loft eða lögur.
Frumvarpið er jafnframt til samræmis við ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, þar sem kveðið er á um að allur úrgangur skuli færður til viðeigandi meðhöndlunar og bann við losun úrgangs annars staðar en á móttökustöð eða í sorpílát. Samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs telst sú athöfn að losa úrgang í náttúru Íslands vera alvarleg háttsemi sem endurspeglast í því að löggjafinn hefur ákveðið að hún skuli vera refsiverð. Með því að kveða sérstaklega á um bann við að skilja eftir úrgang í náttúrunni í lögum um náttúruvernd er alvarleiki slíkrar háttsemi áréttaður enn frekar.
Virðulegi forseti. Meginmarkmið frumvarpsins er, eins og áður segir, að árétta alvarleika þeirrar háttsemi að skilja eftir úrgang í náttúrunni og þannig auka vitund almennings um mikilvægi góðrar umgengni við náttúru Íslands og skerpa á þeim skyldum sem fylgja umgengni við hana. Í þeim tilgangi er lagt til að sú almenna skylda um góða umgengni við náttúru sem birtist í 17. gr. laga um náttúruvernd sé útvíkkuð með þeim hætti að sú skylda að skilja ekki eftir úrgang taki ekki einungis til áningar- eða tjaldstaðar heldur íslenskrar náttúru í heild sinni.
Að mati ráðuneytisins mun frumvarpið ekki hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð, almenning, stofnanir, sveitarfélög eða fyrirtæki — að því gefnu að einstaklingar hendi ekki úrgangi og verði sektaðir í kjölfarið.
Það er ekkert leyndarmál að þetta mál er til komið og kom fyrst fram í formi þingmáls sem ég sem óbreyttur þingmaður flutti fyrir nokkrum árum og hugsun mín var einfaldlega þessi: Ég hef tekið eftir því á ferðum mínum um heiminn að það er mjög mismunandi hversu snyrtilegt er t.d. við þjóðvegi viðkomandi landa en þar sem eru stór skilti þar sem er skýrt að ef viðkomandi einstaklingur hendir úrgangi eða rusli verði hann sektaður hressilega, eins og t.d. í ákveðnum fylkjum í Bandaríkjunum, hef ég aldrei séð annað en að viðkomandi svæði séu mjög snyrtileg. Það þarf mjög lítið til af drasli, sama hvar það er í náttúrunni, til þess að valda miklum lýtum, reyndar þarf í raun bara eina litla mjólkurfernu eða kókdós til að valda sjónmengun. En síðan er það líka bara þannig, virðulegi forseti, að um leið og þetta viðgengst er mikil hætta á að það bætist við. Það er alveg ljóst að við getum gert betur í þessum málum, við Íslendingar, og við skuldum náttúrunni að styrkja enn frekar þann lagabálk sem er um þessi mál. Ég vona, virðulegi forseti, að um þetta mál verði umræða vegna þess að það skiptir máli. Þegar ég flutti þessi mál hér áður var þó nokkur umræða meðal sveitarstjórnarmanna um hvort þetta næði líka til svæða innan þéttbýlis því að það er ekki bara sóðaskapur að henda rusli annað en það á að fara — að vísu er rusl síðan verðmæti en það er annað mál og í öðru samhengi — heldur fylgir því líka kostnaður. Við erum svo lánsöm að það eru sjálfboðaliðar, hundruð og þúsundir þeirra, sem plokka á hverju vori og er það mjög þarft og hef ég tekið þátt í því sjálfur. En það væri auðvitað best ef þeir þyrftu ekki að gera það. Síðan er auðvitað kostnaður sveitarfélaga við að hreinsa rusl talsverður líka.
Virðulegur forseti. Ég vonast til þess að um þetta mál geti náðst góð sátt. Í það minnsta trúi ég ekki öðru en allir hv. þingmenn séu sammála markmiðum þess og því meiri umræða og skoðun í hv. þingnefnd, og sömuleiðis umræður hér í þingsal, því betra, ég er sannfærður um að það muni hafa góð áhrif vegna þess, eins og ég nefndi, að við skuldum náttúru Íslands að fara eins vel með hana og mögulegt er og þess vegna er þetta frumvarp lagt fram.
Ég hef, virðulegi forseti, rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.