Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[14:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir framsöguna sem var um margt ágæt. Ég verð samt að segja eins og er að það er eitt hugtak sem ég sakna í tillögu til þingsályktunar um landbúnaðarstefnu til ársins 2040 en það er hugtakið bóndi. Það er aðeins á einum stað sem hugtakið bóndi kemur fram og það er í 2. lið, undir Loftslagsmál, í kafla 2.1. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Hvati verði skapaður innan stuðningskerfis landbúnaðarins til að auðvelda bændum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda …“

Hvernig má það vera að við erum að tala hér um landbúnaðarstefnu til ársins 2040 og það er ekkert talað um bændur og hugtakið kemur nánast ekki fyrir í landbúnaðarstefnunni? Mér finnst vanta algjörlega í þessa tillögu hugtakið fjölskyldubú, að lífsafkoma bænda verði tryggð, að tryggt verði að ungir bændur geti komið inn í greinina með auðveldum hætti og að kynslóðaskipti verði tryggð. Þessi lífsafkoma þarf að vera með þeim hætti sem getur auðveldað þeim að prófa sig áfram við nýsköpun til að auka verðmæti afurða sinna. Ég veit fyrir víst úr mínu kjördæmi að í Húnavatnssýslu, þar eru sauðfjárbændur, þetta er fátækasta stétt landsins, er lífsafkoma lægst á öllu landinu samkvæmt nýútkominni skýrslu. Þar var staðan þannig að þeir eru í það mörgum vinnum að þeir hafa ekki einu sinni tíma til að nýta sér aðstöðu eins og á Skagaströnd til að auka verðmæti afurða sinna. Ég get því ekki séð að við getum verið með öll þessi háleitu markmið, t.d. að vera í fremstu röð í framleiðslu heilnæmra landbúnaðarafurða og auka nýsköpun, án þess að við horfum beint til lífsafkomu bænda og það verði gert eftirsótt að vera bóndi á hinum dreifbýlu svæðum landsins. Hvernig má það vera að ekkert sé fjallað um lífsafkomu bænda í þessu skjali og nánast ekki minnst á þá?