landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Virðulegur forseti. Landbúnaðarstefnan snýst öll um það að tryggja skilyrði til þess að bændur geti stundað landbúnað. Í kafla hér í greinargerðinni er talað sérstaklega um að styrkja þurfi stoðir fjárhagslegrar afkomu framleiðenda landbúnaðarafurða með því að efla menntun, rannsóknir og þróun í landbúnaði og auka aðgengi að hagkvæmri fjármögnun. Ásættanleg fjárhagsleg afkoma framleiðenda er ein af undirstöðum fæðuöryggis og forsenda nýliðunar í bændastétt. Þetta stendur hér, með leyfi forseta, hv. þingmanni til upplýsingar.
Í kafla 10.3 stendur líka, með leyfi forseta:
„Við ráðstöfun opinbers fjár eða við aðrar aðgerðir til að efla stoðir landbúnaðar verði sérstaklega hugað að því að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun.“
Ég hvet hv. þingmann því til að lesa greinargerðina með tillögunni en þar er þessu ágætlega til haga haldið.
Mig langar líka bara að nota hér tækifærið til að nefna það aðeins að á fundum mínum með bændum fann ég svo skýrt fyrir þessu ákalli eftir því að við sem samfélag værum með stefnu í málefnum landbúnaðar umfram það sem kemur fram í markmiðum laga og í búvörusamningum o.s.frv. Það skiptir máli að búa til traustan grunn fyrir þessar greinar. Þetta hefur verið gert áður en ekki með samfelldum hætti, ekki síðan í kringum 1980, þannig að við erum í raun og veru að tala um 40 ára tímabil þar sem við höfum ekki séð stefnu sem er lögð fyrir Alþingi og borin undir atkvæði þar. Ég tel, virðulegi forseti, mjög mikilvægt að hv. atvinnuveganefnd taki tillöguna til ítarlegrar skoðunar með það að markmiði að hún njóti breiðs og almenns stuðnings hér í þinginu.