Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[14:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu sína þar sem hann fór aðeins yfir söguna og rakti löggjöfina frá því snemma á síðustu öld. Nú er ég ekki bóndi og eins og ég horfi á íslenskan landbúnað þá get ég ekki annað séð en að við séum á rangri braut. Ég get ekki séð að eðlileg kynslóðaskipti verði innan 20 ára. Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er bóndi: Er ekki kominn tími til að snúa þessari þróun við? Telur hann þetta skjal vera merki þess að við getum gert það? Kannski telur hann að við séum á réttri leið, en mér heyrðist ekki. Þurfum við ekki líka að horfa á stöðu okkar á hnettinum, að við séum hér við heimskautsbaug og þurfum að horfa á fæðuöryggi? Við erum vel samkeppnishæf varðandi matvælaframleiðslu við svæði sem við berum okkur saman við, eins og t.d. Noreg og Finnland — tvímælalaust Noreg. Er ekki kjarninn í málinu, sem ætti að koma fram í landbúnaðarstefnu, lífsafkoma bænda? Ég lýsti því yfir í andsvörum við hæstv. matvælaráðherra að það þurfi að vera kafli sem tryggir lífsafkomu bænda og eðlileg kynslóðaskipti. Það er vissulega rétt, sem hv. þingmaður sagði, að taka þarf mið af framleiðslubúunum. Þá er gott að minnast á það að Ísland tók úr gildi lögin um óðalsjarðir. Ég var nú einu sinni lögfræðingur á Skipulagsstofnun og horfði þar upp á landbúnaðarjarðir vera bútaðar sundur í lóðir og annað slíkt. Er ekki kominn tími til að snúa þessari þróun við og að við horfum á framleiðslueininguna — ekki bara það heldur líka að sauðfé sé ræktað á þeim svæðum sem (Forseti hringir.) eru til þess bær, t.d. á Vestfjörðum, og að við notum gæði landsins í matvælaframleiðslu?