Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[14:46]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að deila við hv. þingmann. Við erum ekkert ósammála en það er blæbrigðamunur á því hvernig við setjum þetta fram. Hv. þingmaður spyr með beinum hætti hvað mér þyki vanta í þessa landbúnaðarstefnu. Ég get svarað hv. þingmanni með því að það mun koma þegar við höfum rætt stefnuna í þinginu og klárað hana. Síðan þurfum við að byggja á henni einhverja aðgerðaáætlun, tölusett markmið og aðgerðir sem eiga einmitt að byggja undir það sem við hv. þingmaður erum sammála um. Ég held að það sé alveg hárrétt hjá hv. þingmanni, og ég er sammála því, að það er erfitt að hefja búskap í dag. En það hefur bara alltaf verið erfitt. Það á ekkert endilega að vera þannig en við erum einfaldlega í samkeppni um fólk. Við erum í samkeppni um lífskjör og ef við getum ekki boðið ungu fólki sambærileg lífskjör í landbúnaði eins og í öðrum atvinnugreinum þá mun atvinnugreinin landbúnaður að sjálfsögðu verða undir. Það er veruleiki máls, þó svo að rómantíkin yfir búskapnum og frelsið sem fylgir því að vera bóndi séu enn sannarlega mikils virði. Það eru ekki bara peningar í hugum bænda, líklega síst, en grundvallaratriðið er að við horfum á búin og byggjum undir afkomu þeirra og arðsemi rekstrarins. Um það snýst þessi landbúnaðarstefna og á henni byggjast síðan aðgerðaáætlanir og markmið stjórnvalda. Við höfum, virðulegi forseti, í of langan tíma látið það reka á reiðanum. Ég get nefnt eitt dæmi: Hvers vegna er 300 tonnum minna af nautakjöti framleitt á næstu mánuðum en fyrir nokkrum mánuðum? Er það ekki eitthvað sem stjórnvöld verða að hugsa um? Hvers vegna sköpuðu þau þessar aðstæður? Það eru þessar aðgerðir sem verða að byggja á stefnunni. Ég ætla ekkert að dæma um það hvort það vanti einhvern einn kafla eða annan, en ef grunnurinn er í lagi þá mun okkur farnast vel.