Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 92. fundur,  30. mars 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[15:06]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ágætu ræðu. Ég hef svo sem heyrt áður að flokkur hv. þingmanns vilji hafa bændur frjálsa og er það vel. Við skulum hafa eitt hugfast í þessu samhengi. Verndartollar eru ekkert séríslenskt fyrirbrigði. Við skulum hafa það á hreinu. Það eru tollar lagðir á matvæli vítt og breitt um heiminn. Heilt yfir er það þannig með matvælaframleiðslu innan hvers lands að 90% af henni fer aldrei út fyrir landsteinana. Hennar er neytt innan lands. Þó að hv. þingmaður hafi rætt um að við ættum að framleiða það sem við þyrftum, og ég tek alveg heils hugar undir það, þá er það þannig í dag að staðan hefur gjörbreyst hvað varðar lambakjötsframleiðsluna. Nú er svo komið að við erum að verða ekki sjálfum okkur næg í þeirri framleiðslu sem hér er og þar af leiðandi er alveg afskaplega takmarkað sem er flutt út erlendis. Þetta var náttúrlega gríðarlegt magn hér á árum áður en það hefur breyst. Nú erum við komin yfir á hinn vænginn þar sem á að fara að flytja inn 370 tonn í kvóta og ég held að 270 séu farin, ef ég man þetta rétt, sem eiga að koma frá Spáni. Við munum ræða hérna á eftir það sem snýr að matvælaöryggi þannig að ég ætla ekki að eyða tíma mínum í það, en tímarnir hafa breyst gríðarlega. (Forseti hringir.) Það er aftur á móti þannig, hv. þingmaður, að tollar eru ekki séríslenskt fyrirbrigði.