landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Það má geta þess að ef Ísland væri í Evrópusambandinu, sem Viðreisn stefnir að, þá væru engir tollar. Það eru engir tollar á milli landa Evrópusambandsins. Það er tollfrelsi þar. Ef Ísland væri í Evrópusambandinu værum við með tollfrjálsan útflutning og tollfrjálsan innflutning. Við yrðum að styðja við bændurna með einhverjum öðrum hætti sem væri kannski bara skynsamlegra. Bændur í Finnlandi eru t.d. mjög ánægðir með inngöngu Finnlands í Evrópusambandið. Það er allt annað að vera bóndi í dag, segja þeir, eftir því sem ég hef lesið. Þeir fá styrki frá Evrópusambandinu og mega framleiða nákvæmlega það sem þeir vilja en það fer allt á markað.
Eitt enn sem ég gleymdi að segja áðan varðandi ímynd landbúnaðarins og tengist umræðu um náttúruvernd áðan, ég myndi vilja sjá í þessari stefnumótun hæstv. ráðherra fjallað um umgengni á bændabýlum. Ég er mikill áhugamaður um góða umgengni. Þegar maður ekur fram hjá bóndabýli þá tekur maður eftir umgengni, máluð hús, ekkert drasl. Svo keyrir maður fram hjá öðrum þar sem er allt í drasli, traktorar síðustu 70 ára í réttri röð. Ég myndi vilja sjá í svona stefnumótun umgengnisþátt þar sem bændur eru hvattir til að ganga miklu betur um jörðina sína. Ég tek það fram að fjölmargir bændur eru framúrskarandi góðir í þessu, sérstaklega í Hrunamannahreppi.