Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

beiðni um gögn.

[10:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í umræðum í gær kom upp mál sem mig langar til að leita liðsinnis forseta vegna. Fullyrt var að þingið gæti ekki leitað eftir gögnum hjá framkvæmdarvaldinu sem ekki væru til. Ég spyr oft um ýmiss konar upplýsingar og gögn í fjárlaganefnd um atriði sem þarf kannski að reikna upp hvaða áhrif hafi á ýmsar tekjutíundir, hinar og þessar aðgerðir og svoleiðis. Ég veit að þetta eru gögn sem eru ekki til en ég hef samt fengið þau, alla vega áður, frá fjármálaráðuneytinu. Ég velti fyrir mér hvort það sé einhver áherslubreyting í gangi, hvort það sé eitthvað nýtt sem hefur gerst. Er fjármálaráðuneytið kannski búið að senda forseta eitthvert bréf, tilkynningu, um að fyrirspurnum vegna gagna sem ekki eru til sé ekki svarað? Eða var þetta alltaf svona? Mig langaði aðeins að spyrja forseta um þetta.