Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 93. fundur, 31. mars 2023.
beiðni um gögn.
Forseti ætlar ekki að svara almennum lögspurningum svona óforvarandis í þessari umræðu en ekkert hefur breyst í þessum efnum. Hins vegar hlýtur að vera til athugunar í hverju tilviki fyrir sig hvenær ákvæði 51. gr. þingskapa eða önnur ákvæði sem varða upplýsingaöflun þingsins frá ráðuneyti og öðrum stjórnvöldum kemur til greina. En forseti getur ekki svarað þessu með þeim almenna hætti sem hv. þingmaður leggur það upp.